Costco velti 27 milljörðum og greiddi milljarða til eiganda

Costco á Ís­landi greiddi 4,5 millj­arða króna til móð­ur­fé­lags­ins í Bretlandi á síð­asta ári. Stærst­ur hluti greiðsl­unn­ar var lækk­un á hluta­fé en 1,8 millj­arða arð­ur fylgdi. Starfs­fólki Costco á Ís­landi fjölg­aði í fyrra og rekst­ur­inn virð­ist ganga vel.

Costco velti 27 milljörðum og greiddi milljarða til eiganda
Hagnaður Kaupfélagið Costco hagnaðist um rúman hálfan milljarð í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Costco í Kauptúni velti 26,7 milljörðum króna á síðasta rekstrarári, sem lauk 31. ágúst 2025. Veltan jókst um tæpa tvo milljarða króna frá fyrra ári, eða 7,9 prósent. Þetta kemur fram í ársreikningi Costco Wholesale Iceland ehf., sem er félagið á bak við starfsemina í Garðabæ.

Rekstrarhagnaður félagsins jókst verulega milli ára og nam 94 milljónum króna, samanborið við 36 milljónir króna árið áður. Rekstrarhagnaðurinn er þó áfram mjög lítill sem hlutfall af veltu, eða 0,35 prósent.

Hagnaður ársins eftir skatta nam 557 milljónum króna og dróst saman um 50 milljónir frá árinu áður. Skýrist það ekki síst af lægri fjármunatekjum, sem námu 422 milljónum króna á árinu en voru 514 milljónir króna árið áður.

Milljarða arðgreiðsla og útgreiðsla

Þrátt fyrir að hagnaður ársins hafi numið rúmum hálfum milljarði króna fóru mun hærri fjárhæðir út úr félaginu á árinu. Samkvæmt sjóðstreymisyfirliti greiddi félagið 1,8 milljarða króna í arð, lækkaði hlutafé …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
3
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Samfylkingin klofnar vegna brottfararstöðvar: Hvað annað átti að gera?
4
Stjórnmál

Sam­fylk­ing­in klofn­ar vegna brott­far­ar­stöðv­ar: Hvað ann­að átti að gera?

Þing­nefnd­in sem fjall­aði um ný­sam­þykkta brott­far­ar­stöð fékk ábend­ing­ar og hug­mynd­ir að minnst tíu öðr­um leið­um sem hægt væri að fara en að setja börn í lok­að úr­ræði í brott­far­ar­stöð. Sam­fylk­ing­in virð­ist klof­in í af­stöðu sinni til máls­ins þó að þingl­ið flokks­ins hafi hreykt sér af sam­þykkt lag­anna.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár