Forsætisráðherra sakar Musk um að kynda undir reiði vegna morðsins

Keir Starmer, leið­togi Bret­lands, sakar Elon Musk um að „reyna að kynda undir sundr­ungu“ í Bret­landi, auk þess að dreifa lygum og rang­færslum. Reiði er í fólki vegna við­bragða lög­reglu við morði á náms­manni.

Forsætisráðherra sakar Musk um að kynda undir reiði vegna morðsins

Keir Starmer, leið­togi Bret­lands, sakar Elon Musk um að „reyna að kynda undir sundr­ungu“ í Bret­landi í kjöl­far reiði vegna við­bragða lög­reglu við morði á hvítum náms­manni sem framið var af síka. 

Mál hins 18 ára gamla Henry Nowak, sem var hand­járn­aður af lög­reglu þar sem hann lá hel­særður eftir að hafa verið stung­inn af Vickrum Digwa, 23 ára, í borg­inni Southampton í suð­ur­hluta lands­ins í des­em­ber, hefur skapað póli­tísk átök í Bret­landi.

Árás­armað­ur­inn, Digwa, laug og sagði lög­reglu að hann væri fórn­ar­lambið og að Nowak hefði beitt hann kyn­þátt­a­níði.

Hægri öfga­menn hafa gripið morðið á lofti sem dæmi um að lög­reglu­yf­ir­völd í Bret­landi komi öðru­vísi fram við hvítt fólk en fólk af þjóð­ern­is­minni­hlutum, ásökun sem rík­is­stjórn Verka­manna­flokks­ins undir for­ystu Starmer og lög­reglu­stjórar neita harð­lega.

Musk, eig­andi X, hefur ítrekað tjáð sig þar um við­brögð lög­reglu við hnífstung­unni. Í einni færslu spurði hann hvort fólk vissi að „opin­ber stefna …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár