Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi

Einu og hálfu ári frá al­þing­is­kosn­ing­um hafa fjór­ir áhrifa­menn úr Sjálf­stæð­is­flokki horf­ið af þingi og til annarra starfa. Fyrr­ver­andi for­ysta er öll horf­in, nú þeg­ar flokk­ur­inn er í stjórn­ar­and­stöðu. Góð­ur ár­ang­ur í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um gef­ur flokkn­um byr und­ir nýj­um leið­tog­um í sveit­ar­fé­lög­um og á landsvísu.

Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
Sendiherra, lobbýisti, bæjarstjóri og MPA Fjögur úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins, sem öll hafa gegnt embættum í forystu flokksins, hafa horfið til annarra starfa á kjörtímabilinu.

Fjórir af þeim fjórtán frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins sem náðu kjöri sem alþingismenn í kosningunum 30. nóvember 2024 hafa þegar horfið til annarra starfa.

Sjálfstæðisflokkurinn fékk sína verstu útkomu í kosningunum frá stofnun, 19,4% atkvæða á landsvísu og 14 þingmenn. Þetta var í fyrsta sinn sem flokkurinn fór undir 20% og flokkurinn þurfti að sætta sig við að verða í stjórnarandstöðu í aðeins annað sinn á þessari öld.

Nú síðast tilkynnti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir um að hún væri hætt á þingi en hún var talin vonarstjarna flokksins um skeið. Hún gegndi embætti ritara flokksins 2015 til 2019 og varð dómsmálaráðherra árið 2019, þá aðeins 29 ára gömul. Hún bauð sig svo fram til formanns í ársbyrjun 2025 en tapaði naumlega fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Eftir að niðurstaðan lá fyrir tilkynnti hún að hún ætlaði í leyfi frá þingstörfum til að stunda MPA-nám við Columbia-háskóla …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
3
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
1
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
5
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár