Á rétt á biðlaunum í hálft ár

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir hættir á Alþingi og á rétt á tæpum 10 millj­ónum króna í bið­laun. Sú upp­hæð, til við­bótar við þær greiðslur sem hún fékk á meðan náms­leyfi hennar í New York stóð, dugar fyrir skóla­gjöldum hennar við Columbia-háskóla og nær hátt í allan áætl­aðan kostnað við náms­dvöl­ina.

Á rétt á biðlaunum í hálft ár
Við Columbia háskól­ann Háskól­inn áætlar 15,2 millj­óna króna kostnað við nám Áslaugar Örnu en hún hefur átt rétt á alls um 12,8 millj­ónum frá Alþingi frá því að hún hélt út í nám þar til tíma­bili bið­launa lýkur. Mynd: Instagram

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, sem til­kynnti í dag að hún hygð­ist hætta á Alþingi, á rétt á þing­far­ar­kaupi í sex mán­uði. Nemur upp­hæð bið­laun­anna 9.667.728 krónum.

Þar áður hafði hún fengið 3,1 milljón króna í greiðslur frá Alþingi á meðan hún stund­aði eins árs MPA Global Leaders­hip nám við Columbia háskóla. Saman ættu því bið­laun hennar og greiðslur á meðan náms­leyfi stóð að duga fyrir skóla­gjöldum í nám­inu en þau voru í fyrra sam­tals 86.439 Banda­ríkja­dalir, and­virði rúm­lega 10,7 millj­óna króna sam­kvæmt geng­is­skrán­ingu við upp­haf Banda­ríkja­dvalar Áslaugar Örnu í júní í fyrra.

Raunar slagar upp­hæðin hátt upp í það sem Columbia-háskóli áætlar að nem­endur þurfi að hafa á milli hand­anna á meðan þessu eins árs námi við skól­ann stendur. Sé tekið til­lit til kostn­aðar við leigu, mat, skóla­bækur, sam­göngur og annan kostnað - að skóla­gjöld­unum með­töldum - þarf náms­maður að hafa um 122.481 doll­ara að mati skól­ans, eða um …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigmundur Gretarsson skrifaði
    Ætli viðskiptaráð hafi enga skoðun á þessu framferði með almannafé?
    1
    • Olafur Kristjansson skrifaði
      Leggur örugglega blessun sína yfir þetta. Það á að styðja þá sem minna megasín.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár