Inga í veikindaleyfi

Inga Sæ­land er far­in í veik­inda­leyfi. Þetta er ann­ar ráð­herra Flokks fólks­ins, og ann­ars mennta- og barna­mála­ráð­herra, sem fer í þannig leyfi á kjör­tíma­bil­inu.

Inga í veikindaleyfi
Inga Sæland er farin í veikindaleyfi í bili. Mynd: Golli

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formaður Flokks fólksins, er farin í tímabundið veikindaleyfi að því er fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu. Þar segir enn fremur að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru hennar.

Ekki kemur fram í tilkynningu hvenær áætlað er að ráðherrann snúi aftur til starfa og ekki náðist í upplýsingafulltrúa Flokks fólksins vegna málsins.

Þetta er annar ráðherra Flokks fólksins sem fer í veikindaleyfi á kjörtímabilinu. Áður fór Guðmundur Ingi Kristinsson sem áður var einnig mennta- og barnamálaráðherra. Hann sagði sig svo óvænt úr flokknum þegar hann sneri aftur á þing og bar við trúnaðarbresti.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár