Seðlabankinn hækkar vexti

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Ís­lands hef­ur ákveð­ið að hækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig og verða þeir því 7,75 pró­sent. All­ir nefnd­ar­menn studdu hækk­un­ina. Bank­inn seg­ir verð­bólgu­horf­ur hafa versn­að og úti­lok­ar ekki frek­ari vaxta­hækk­an­ir.

Seðlabankinn hækkar vexti

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, svokallaðir stýrivextir, verða því 7,75 prósent.

Allir nefndarmenn studdu ákvörðunina.

Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að verðbólga hafi verið yfir fimm prósentum það sem af er ári og mælist nú 5,2 prósent. Verðbólguvæntingar hafi jafnframt hækkað, einkum til skamms tíma.

Nefndin bendir á að hækkun verðbólguvæntinga frá því að stríðsátök hófust í Mið-Austurlöndum sé þó ekki jafn mikil og í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu fyrir fjórum árum. Þar vegi þungt að spennan í þjóðarbúinu hafi þá verið töluvert meiri.

Samkvæmt nýrri spá Seðlabankans eru horfur á minni hagvexti og meira atvinnuleysi en bankinn spáði í febrúar. Á sama tíma hafa verðbólguhorfur versnað vegna mikillar hækkunar olíu- og hrávöruverðs og viðvarandi innlends verðbólguþrýstings.

Í yfirlýsingunni segir að efnahagsaðstæður gætu þróast til verri vegar ef truflanir á alþjóðlegum olíumarkaði vara lengur en nú er gert ráð fyrir eða ef kjarasamningum verður sagt upp síðar á árinu.

Peningastefnunefnd telur rétt að hækka vexti í ljósi verri verðbólguhorfa og hárra verðbólguvæntinga. Nefndin segist jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni að markmiði, þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.

Mótun peningastefnunnar muni sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár