Mikilvægur hafstraumur í Atlantshafi virðist líklegri til að hrynja en áður var talið, samkvæmt nýrri rannsókn sem sýnir að loftlagslíkön sem spá fyrir um mestu breytingarnar séu raunhæfust. Niðurstöður fyrri rannsókna eru samhljóða, þar á meðal rannsókn sem Heimildin greindi frá í ágúst í fyrra.
Fjallað var um málið í The Guardian í síðustu viku og haft eftir vísindamönnum að niðurstöðurnar væru mikið áhyggjuefni, þar sem hrun AMOC-hafstraumsins hefði skelfilegar afleiðingar fyrir Evrópu, Afríku og Ameríku.
Ættu umsvifalaust að grípa til aðgerða
Í viðtali við Heimildina árið 2024 hvatti þýski hafeðlisfræðingurinn Stefan Ramhstorf stjórnvöld til að grípa til aðgerða: „Persónulega þá tel ég að áhættan á þessum breytingum í hafi sé svo alvarleg, sérstaklega fyrir Íslendinga og hin Norðurlöndin, að ríkisstjórn Íslands ætti umsvifalaust að grípa til aðgerða ásamt ríkisstjórnum hinna Norðurlandanna.“
„Ríkisstjórn Íslands ætti umsvifalaust að grípa til aðgerða“
Ramhstorf var einn af höfundum loftslagsskýrslu IPCC, loftslagsnefndar Sameinuðu þjóðanna, …


















































Það endurspeglar líklega einhvers konar samfélagslega afneitun eða jafnvel þöggun, þar sem við – meðvitað eða ómeðvitað – forðumst að horfast í augu við kerfisógn sem kallar á óþægilegar spurningar um framtíð okkar.