Enn bætist í kærur á hendur Írisi Helgu Jónatansdóttur, en eyjamaðurinn Guðjón Örn Sigtryggsson kærði hana til lögreglu í lok árs vegna umsáturseineltis sem hann hefur orðið fyrir. Þá hefur kona honum tengd einnig kært Írisi til lögreglu vegna áreitis, en yfirmaður hennar, skólastjóri í grunnskóla, fékk tölvupóst sem innihélt alvarlegar ásakanir á hendur konunni, sem starfar við grunnskóla. Var það tengt Guðjóni og reyndist uppspuni frá rótum.
Sökuð um að standa á bak við dánartilkynningu
„Ég er ekki hundrað prósent viss um að þetta sé hún, en ég er 99 prósent viss,“ segir Guðjón Örn spurður um skilaboðin, en hann steig óvænt fram á samfélagsmiðlum fyrir helgi þar sem hann greindi frá því að hann hefði orðið fyrir áreiti af hálfu Írisar Helgu.

Tilefnið var handtaka hennar eftir að hún var sökuð um að hafa komið því …















































Athugasemdir