Mistókst að brenna bandaríska fánann á vel heppnuðum mótmælum

Mót­mæl­end­ur komu sam­an fyr­ir ut­an banda­ríska sendi­ráð­ið síð­deg­is í gær til þess að mót­mæla ír­ans­stríði. Eins mætti fá­menn­ur hóp­ur til þess að styðja við Banda­rík­in. Fána­brenna mistókst herfi­lega.

Mistókst að brenna bandaríska fánann á vel heppnuðum mótmælum
Fánabrenna Mótmælendur komust að þeim bitra sannleik í gær að það er enginn hægðarleikur að brenna bandaríska fánann. Mynd: Golli

„Það er rétt að fánabrennur eru enn ólöglegar hér á landi, en kannski pínu írónískt að að í Bandaríkjunum er slíkt hluti af lögvernduðum rétti manna til mótmæla,“ segir Stefán Pálsson, en heiðarleg tilraun var gerð til þess að brenna bandarískan fána á mótmælum hernaðarandstæðinga fyrir utan bandaríska sendiráðið síðdegis í gær.

Tilefnið var stríðsrekstur Ísraela og Bandaríkjamanna gegn Írönum, en tilkynnt var um vopnahlé skömmu eftir að Donald Trump hótaði að eyða allri íranskri siðmenningu af yfirborði jarðar opnaði ríkið ekki aftur fyrir skipaumferð um Hormússundið.

Um 30 manns komu saman í gær fyrir utan sendiráðið til þess að láta í ljós óánægju sína með stríðið, en þrír einstaklingar komu einnig saman til þess að sýna bandarískum og ísraelskum yfirvöldum stuðning.

Stefán PálssonStefán Pálsson liðsmaður VG og hernaðarandstæðinga hélt ræðu á fundinum.

Stefán gerir lítið úr því og lýsir uppákomunni léttur í bragði: „Það komu svona …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár