Rex Heuermann, sem sakaður er um að hafa myrt og sundurlimað sjö konur og dreift líkamsleifum þeirra um auðugt strandsvæði í Bandaríkjunum játaði sig sekan á miðvikudag, að því er staðarmiðlar greina frá. Hann var kvæntur íslenskri konu, Ásu Guðbjörgu Ellerup, í 27 ár.
Heuermann, 62 ára, játaði sig sekan fyrir dómstóli í Suffolk-sýslu um mannrán, pyntingar og morð á sjö konum víðsvegar um Long Island á árunum 1993 til 2010 og á nú yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef dómarinn samþykkir játningu hans, að því er PIX11 greindi frá.
Arkitektinn Heuermann, sem var fyrst handtekinn í júlí 2023 fyrir utan skrifstofu sína á Manhattan, hafði upphaflega neitað sök, sem gaf til kynna að löng réttarhöld biðu fjölskyldna fórnarlamba hans.
Líkamsleifar ellefu morðfórnarlamba – níu kvenna, eins manns og ungrar stúlku – fundust árin 2010 og 2011 í kjarri meðfram hraðbrautinni nálægt Gilgo Beach, strandlengju við suðurströnd Long Island.
Gilgo Beach-málið hafði vafist fyrir rannsakendum í mörg ár, en lík fórnarlambanna, flest þeirra kynlífsverkafólk, fundust á sama afskekkta strandkaflanum án þess að nokkur grunaður væri nafngreindur.
Árið 2022 beindu rannsakendur hins vegar sjónum sínum að Heuermann eftir að í ljós kom að hann var skráður eigandi ökutækis sem eitt fórnarlambanna hafði sést í.
Síðan þá hefur málið gegn Heuermann – sem var kvæntur tveggja barna faðir þegar morðin voru framin – byggst á DNA-sönnunargögnum úr pizzukassa sem hent hafði verið og farsímagögnum sem tengja hann við fórnarlömbin.
Sum þessara sönnunargagna fundust á heimili fjölskyldu hans í Massapequa Park.
Heuermann framkvæmdi einnig hundruð leita á netinu um rannsóknina á morðunum og spurði spurninga á borð við: „Af hverju hefur raðmorðinginn á Long Island ekki náðst?“



















































Athugasemdir