Ferðalög Reykjavíkurborgar kostuðu 65 milljónir

Heild­ar­kostn­aður útsvars­greið­enda Reykja­vík­ur­borgar vegna ferða­laga var um 65 millj­ónir króna á síð­asta ári. Skrif­stofa borg­ar­innar var með næst­hæsta kostn­að­inn á eftir skóla- og frí­stunda­sviði.

Ferðalög Reykjavíkurborgar kostuðu 65 milljónir
Ráðhús Reykja­víkur Kostn­aður vegna skrif­stofu Reykja­vík­ur­bogar var um 13 millj­ónir. Mynd: Golli

Ferða­kostn­aður Reykja­vík­ur­borgar kost­aði útsvars­greið­endur um 65 millj­ónir króna á síð­asta ári, eða árið 2025, þar af voru 45 millj­ónir tæpar vegna ferða­laga erlendis. Skóla- og frí­stunda­svið Reykja­vík­ur­borgar er atkvæða­mest þegar kemur að ferða­lögum Reykja­vík­ur­borgar. Gjald­færður kostn­aður árið 2025 vegna ferða kjör­inna full­trúa var um fjórar millj­ónir króna og skrif­stofa Reykja­vík­ur­borgar er með næst­hæsta kostn­að­inn þegar kemur að ferða­lögum innan borg­ar­innar.

Alls voru 296 ferða­heim­ildir sam­þykktar hjá Reykja­vík­ur­borg árið 2025 sam­kvæmt svörum borg­ar­innar við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. Einnig var spurt um ferða­kostnað eftir sviðum. Í svör­unum kemur fram að skóla- og frí­stunda­svið Reykja­vík­ur­borgar fékk 139 ferða­heim­ildir sam­þykktar hjá Reykja­vík­ur­borg, þar af 27 vegna ferða inn­an­lands. Kostn­aður vegna ferða­lag­anna var um 22 millj­ónir króna en sviðið er umfangs­mikið. Það nær yfir skóla- og frí­stunda­þjón­ustu í leik­skólum, grunn­skólum, frí­stunda­heim­ilum, félags­mið­stöðvum, skóla­hljóm­sveitum og fleiri stofn­unum í Reykja­vík.

Skrifstofan næstdýrust

Þegar litið er til skrif­stofu mið­lægrar stjórn­sýslu má sjá að þar er ferða­kostn­aður …

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Maria Maack skrifaði
    Bara afsakið, ég held að þetta sé ekki mjög hár kostnaður.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár