Donald Trump sagði í gærkvöldi að Bandaríkin gætu gert fleiri árásir á mikilvæga olíuútflutningsmiðstöð Írans á Kharg-eyju í Persaflóa „bara til gamans“.
Hann hafnaði því að friður væri í nánd, þótt hann hafi áður gefið það til kynna. Skilaboð forsetans hafa verið mótsagnakennd og stefna hans sviptingasöm gagnvart Íran og stríðinu sem Ísrael og Bandaríkin hófu skyndilega gegn landinu 28. febrúar síðastliðinn.
„Skilmálarnir eru ekki nógu góðir ennþá,“ sagði Bandaríkjaforseti í samtali við NBC News. Þar hélt hann því fram að íranska stjórnin vildi gera samning, þrátt fyrir að annað hafi komið fram opinberlega frá stjórninni. Íran er nú sagt leitt af Mojtaba Khamenei, syni erkiklerksins Khameini sem drepinn var í loftárásum í upphafi stríðsins, ásamt eiginkonu sinni og mörgum fleirum.
Trump efaðist um það í viðtalinu við NBC, án þess að nefna heimildir, að nýi æðsti leiðtogi Írans, Mojtaba Khamenei, væri á lífi, en hann hefur ekki komið fram opinberlega eða á myndbandi síðan stríðið hófst, þrátt fyrir að yfirlýsingar hafi verið eignaðar honum.
Eftir marga daga af misvísandi skilaboðum frá Hvíta húsinu um hversu lengi það muni halda áfram stríðsrekstri gegn Íran, fullyrti Trump að bandarískar árásir hefðu „gjörsamlega eyðilagt“ mestan hluta Kharg-eyju og sagði við fréttastofuna að herinn gæti gert árás á svæðið „nokkrum sinnum í viðbót bara til gamans“.
„Við höfum gjörsamlega lagt hana í rúst,“ sagði hann. „Nema, eins og þú veist, þá gerði ég ekkert sem tengdist raforkulínunum, því það tæki mörg ár að endurbyggja þær.“
Íran hafnar samningsvilja
Utanríkisráðherrann Abbas Araghchi sagði Íran ekki hafa áhuga á viðræðum við Bandaríkin og hafnaði þar með afstöðu Donalds Trump um að Íran vildi gera samning til að binda enda á stríðið.
„Við erum stöðug og nógu sterk. Við erum aðeins að verja fólkið okkar,“ sagði Araghchi í viðtali við þáttinn „Face The Nation“ á CBS sem sýndur var í dag.
„Við sjáum enga ástæðu til að ræða við Bandaríkjamenn, því við vorum að tala við þá þegar þeir ákváðu að ráðast á okkur. Það er engin góð reynsla af því að tala við Bandaríkjamenn.“
Hann hafnaði yfirlýsingum Trumps um afstöðu Írana.
„Við báðum aldrei um vopnahlé og við höfum aldrei einu sinni beðið um samningaviðræður,“ sagði Araghchi.
Hann bætti við að Íran væri tilbúið að ræða við lönd sem vilja semja um að valin olíuskip fái að fara um hina mikilvægu útflutningsleið Hormússunds.
„Ég get ekki nefnt neitt sérstakt land, en nokkur lönd sem vilja tryggja örugga siglingu fyrir skip sín hafa haft samband við okkur,“ sagði hann.






















































Athugasemdir