Trump afneitar skuldbindingu gagnvart NATO

Varn­ar­stefna Íslands er í upp­námi, ef marka má yfir­lýs­ingu Donalds Trump í gær­kvöldi. „Hræðileg mis­tök,“ segir hann um ákvörðun Evr­ópu­ríkja að forð­ast Írans­stríðið.

Trump afneitar skuldbindingu gagnvart NATO
Engin skuld­bind­ing Trump talar á Future Invest­ment Ini­ti­ative (FII) Summit í Miami Beach, Flórida, í gær­kvöldi. Mynd: AFP

Donald Trump for­seti segir að Banda­ríkin muni ekki telja sig skuld­bundin til að styðja NATO-ríki í stríði, vegna þess að þau sýndu ekki nægi­legan stuðn­ing í „hern­að­ar­að­gerð“ Banda­ríkj­anna gegn Íran sem stendur nú yfir.

Sé yfir­lýs­ing hans rétt munu Banda­ríkin ekki vera skuld­bundin til að standa við 5. grein Atl­ants­hafs­sátt­mál­ans frá 1949, sem Ísland er stofn­að­ili að, sem kveður á um að árás á eitt ríki sé árás á þau öll, en það er önnur af tveimur meg­in­stoðum varn­ar­stefnu Íslands, ásamt tví­hliða varn­ar­samn­ingi við Banda­ríkin.

„Við hefðum alltaf verið til staðar fyrir þá. En núna, miðað við gjörðir þeirra, þá geri ég ráð fyrir að við þurfum ekki að gera það,“ sagði hann á fjár­fest­ing­ar­þing­inu Future Invest­ment Ini­ti­ative Institute's summit í Flórída í gær.

Þar rakti Trump að leið­togar Evr­ópu­ríkja hafi ekki viljað taka strax þátt í hern­að­ar­að­gerðum á Persaflóa. Þannig hafi Bretland ekki viljað senda lítil flug­móð­ur­skip og Þýska­land talið stríðið ekki vera sitt, þótt Banda­ríkin hefðu hjálpað til við Úkra­ínu­stríðið.

„Ég tel að NATO hafi gert hræði­leg mis­tök þegar þeir vildu ekki senda smá­vægi­legan her­gagna­búnað – þegar þeir vildu ekki einu sinni við­ur­kenna það sem við vorum að gera fyrir heim­inn með því að takast á við Íran,“ sagði hann í svari við spurn­ingu frétta­manns um hver væru mestu mis­tök þjóð­ar­leið­toga um þessar mundir.

Spurður hvort þetta væri stór­frétt, ját­aði Trump því.

„Já, herra minn. Þetta er stór­frétt. Ég held að við séum með stór­fréttir. En þetta er stað­reynd. Ég hef verið að segja þetta. Af hverju ættum við að vera til staðar fyrir þá ef þeir eru ekki til staðar fyrir okkur? Þeir voru ekki til staðar fyrir okkur.“

Íslensk stjórn­völd hafa und­an­farið und­ir­ritað varn­ar­sam­starf við Evr­ópu­sam­bandið og ein­stök aðild­ar­ríki þess, sem hefur þó mun tak­mark­aðri vídd og vægi en Atl­ants­hafs­sátt­mál­inn hefur haft, auk þess sem hern­að­ar­geta ESB-ríkj­anna er mun minni en Banda­ríkj­anna.

Trump hefur áður hótað að standa ekki við skuld­bind­ingu gagn­vart NATO-ríkjum á grund­velli þess að þau ráð­stafi ekki nægi­lega háu hlut­falli þjóð­ar­fram­leiðslu sinnar til hern­að­ar­út­gjalda, sem leiddi til þess að ríkin juku almennt útgjöld sín til mála­flokks­ins.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár