Rífandi stemning og rifinn liðþófi

Það er ríf­andi stemn­ing í Þjóð­leik­hús­inu þessa dag­ana. Tvær gjör­ó­líkar sýn­ingar sem báðar byggja á alda­gömlum sögnum eru sýndar sam­tímis hvor á sínu svið­inu.

Rífandi stemning og rifinn liðþófi
Nánd og þétt­leiki Leik­hópur Óresteiu hitar upp rétt áður en þau stíga á svið. „Það skap­ast mik­ill þétt­leiki og traust við svona nána sam­vinnu,“ segir Atli Rafn Sig­urðs­son. Mynd: Golli

Ormstunga er sýnd á Stóra svið­inu, nýr íslenskur söng­leikur byggður á Gunn­laugs sögu orms­tungu, og Óresteia, sem byggð er á þrí­þættum grískum harm­leik eftir Æskýlos, í Kassanum. Báðar hafa fengið afburða­lof gagn­rýnenda og eru stöðugt sýndar fyrir fullu húsi. „Það eru sögu­legir tímar í hús­inu. Ég man ekki eftir svona vel­gengni áður,“ segir Magnús Geir Þórð­ar­son þjóð­leik­hús­stjóri og bætir við að þau séu búin að sýna Línu Langsokk 75 sinnum sam­hliða við fádæma und­ir­tektir og frá­bæra dóma. 

Hrikaleg átök og örlög sögu­hetja leik­svið­anna hafa áhrif langt út fyrir veggi leik­húss­ins enda gefa leik­ar­arnir allt sitt í sýn­ing­arnar. Atli Rafn Sig­urð­ar­son ökkla­brotn­aði milli sýn­inga og lék slas­aður í viku áður en brotið greind­ist og hann fékk spelku sem hann hefur notað síðan. Það fimmtu­dags­kvöld sem ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar fékk að flakka um bak­svið Þjóð­leik­húss­ins og fanga fjöl­mörg augna­blik, reif Ebba Katrín Finns­dóttir lið­þófa í hné en beit þó á jaxl­inn og …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár