Páfinn gagnrýnir ofbeldisbænir eftir að Hegseth bað til Guðs um „yfirþyrmandi ofbeldi“

Írans­stríðið fær á sig sífellt trú­ar­legri blæ. Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna biður fyrir „yfir­þyrm­andi ofbeldi“ gegn óvinum Banda­ríkj­anna. Fyrsti banda­ríski páf­inn sendi frá sér ákúrur frammi fyrir tug­þúsendum áheyr­enda á Pét­urs­torg­inu.

Páfinn gagnrýnir ofbeldisbænir eftir að Hegseth bað til Guðs um „yfirþyrmandi ofbeldi“
Leó páfi Fyrsti banda­ríski páf­inn hefur leynt og ljóst gagn­rýnt Banda­ríkja­stjórn, stefnu hennar og verkn­aði. Mynd: Shutterstock

Leó páfi XIV var­aði við því í dag að Guð „hlusti ekki á bænir þeirra sem heyja stríð“, eftir að stríð Banda­ríkj­anna og Ísraels gegn Íran hefur tekið á sér sífellt trú­ar­legri blæ. Á sama tíma virð­ast Banda­ríkin und­ir­búa mögu­legan land­hernað í Íran, sam­kvæmt frétt Washington Post, og full­trúar klerka­stjórn­ar­innar segj­ast bíða eftir þeim, til að geta „kveikt í þeim“.

„Þetta er Guð okkar ... Guð sem hafnar stríði ... sem hlustar ekki á bænir þeirra sem heyja stríð, heldur hafnar þeim,“ sagði hann í pré­dikun sinni nú á pálma­sunnu­dag.

Boðskapur Jesú gegn stríði

Í predik­un­inni sagði páf­inn að átökin milli Írans, Ísraels og Banda­ríkj­anna væru „hrylli­leg“ og að ekki væri hægt að nota Jesú til að rétt­læta stríð.

„Þetta er Guð okkar: Jesús, kon­ungur frið­ar­ins, sem hafnar stríði, sem eng­inn getur notað til að rétt­læta stríð,“ sagði hann við tug­þús­undir áheyr­enda á Pét­urs­torg­inu í Róm.

Leó páfi vitn­aði síðan í Gamla testa­ment Bibl­í­unnar, Jesaja-bók: „Þótt þér biðjið mörgum bænum, þá heyri ég ekki. Hendur yðar eru alblóð­ugar.“

Eftir Angelus-bæn­ina vott­aði hann „kristnum mönnum í Mið­aust­ur­löndum virð­ingu sína, en þeir þjást af afleið­ingum hræði­legra átaka og geta í mörgum til­fellum ekki lifað helgi­hald þess­ara heilögu daga til fulls“.

Fyrr í vik­unni kall­aði páf­inn eftir vopna­hléi í stríð­inu í Mið­aust­ur­löndum og sagði að meira en milljón manns hefðu neyðst til að flýja heim­ili sín og hvatti stríð­andi fylk­ingar til að hefja við­ræður.

Leó XIV, fyrsti banda­ríski páf­inn, hefur ítrekað for­dæmt stríðið og kallað eftir við­ræðum.

Páfinn sjö­tugi hefur verið var­kár í yfir­lýs­ingum sínum frá því að árásir Banda­ríkj­anna og Ísraels á Íran hófu stríðið 28. febr­úar og hefur forð­ast að nafn­greina nokkurn aðila í for­dæm­ingum sínum og frið­ar­köllum.

Benjamín Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, vakti á móti mikla athygli fyrir til­vitnun sína á fundi með erlendum blaða­mönnum á dög­unum um að Jesús Kristur hefði ekki haft neitt for­skot á Gengis Khan, sem var einn fræg­asti fjöldamorð­ingi sög­unnar þegar hann áork­aði hraðri útþenslu mongólska keis­ara­dæm­is­ins á 13. öld.

Hegseth biður fyrir ofbeldi

Rík­is­stjórn Donalds Trump hefur í vax­andi mæli tengt saman trú­mál og hernað upp á síðkastið.

Pete Hegseth, varn­ar­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sem kallar sig stríðs­mála­ráð­herra, heldur mán­að­ar­legar guðs­þjón­ustur í ráðu­neyt­inu, Pentagon. Á mið­viku­dag bað hann fyrir „yfir­þyrm­andi gjörðum ofbeldis“ gegn „þeim sem verð­skulda enga mis­kunn“:

„Sjá nú hina vondu sem rísa gegn rétt­læti þínu og friði hinna rétt­sýnu. Brjóttu staf kúg­ar­ans, gerðu að engu hin illu áform og brjóttu tennur hinna óguð­legu. Lát hið illa far­ast fyrir spreng­ingum reiði þinnar,“ las Hegseth í Pentagon. Hann eign­aði ónefndum presti text­ann, sem hann sagði hafa flutt fyrir her­mönnum fyrir árás­ina á Venes­ú­ela í árs­byrjun, þar sem for­seti lands­ins var hand­samaður.

Pete HegsethStríðs­mála­ráð­herr­ann heldur mán­að­ar­legar guðs­þjón­ustur.
„Gef þess­ari her­sveit skýr og rétt­lát skot­mörk fyrir ofbeldi.“
Pete Hegseth
Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna í bæn í Pentagon á mið­viku­dag.

Hegseth hélt áfram bæn sinni frammi fyrir ein­kenn­is­klæddum her­mönnum og almennu starfs­fólki ráðu­neyt­is­ins: „Gef þess­ari her­sveit skýr og rétt­lát skot­mörk fyrir ofbeldi. Umkringdu þau sem skjöldur, vernd­aðu hina sak­lausu og vamm­lausu í þeirra hópi, gerðu örvar þeirra eins og örvar þraut­þjálfaðs stríðs­manns sem snýr ekki aftur tóm­hentur. Lát hverja kúlna­hríð hitta í mark á óvinum rétt­vís­innar og okkar miklu þjóðar.“

Samtök um aðskilnað ríkis og kirkju í hófu á mánu­dag lög­sókn gegn guðs­þjón­ustum í Stríðs­mála­ráðu­neyt­inu svo­kall­aða. 

Leó páfi fékk heim­boð frá Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í fyrra, en engin áform um heim­sókn hafa verið gefin út.

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Enn og aftur, það er ekkert hættulegra en trúarbrögð, öll grey samfélaga jarðar eru þvinguð til að trúa eintómum lygum um einhverja drauga til þess að fá betri vist eftir dauðann.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár