Félagar í stríði Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og Benjamin Net­anyahu, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, takast í hendur upp­haf blaða­manna­fundar í Mar-a-Lago, heim­ili Trumps í Palm Beach í Flórída, þann 29. des­em­ber 2025. Þar réðu þeir ráðum sínum um fram­tíð Gazasvæðisins. Samkvæmt fréttum þess tíma ræddu þeir hug­myndir Net­anja­hús um að ráð­ast aftur á Íran, sem varð að veru­leika 28. febr­úar síð­ast­lið­inn. Mynd: AFP

Veröld valdsins eftir fall hugsjónanna

Benjamín Net­anjahú segir að Jesús Kristur hafi ekki haft neitt fram yfir Gengis Khan. „Það er ekki nóg að gera sið­ferð­is­lega rétt,“ segir hann og boðar stríð við „villi­menn“. Geir H. Haarde, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands, lýsir því að hug­sjón­irnar séu fallnar og að Íslend­ingar þurfi að „liggja lágt“ gagn­vart Banda­ríkj­unum vegna valds þeirra.

Benjamín Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, teikn­aði upp heims­mynd sína og heim­speki á fundi með blaða­mönnum í vik­unni, mitt í inn­rás Ísraels í Líbanon, loft­árásum á Íran og vax­andi útþenslu land­nema­byggða Ísraela á svæðum Palest­ínu­manna, í kjöl­far eyð­ingar á meiri­hluta hús­næðis og inn­viða á Gazasvæðinu.

Net­anjahú vildi sýna fram á að frá­sagnir af dauða hans væru orðum auknar og færa fram sína sýn á aðgerð­ina „Öskrandi ljón“, sem er heitið á Írans­stríði Ísraela, og boð­aði því til fyrsta blaða­manna­fund­ar­ins á ensku eftir upp­haf stríðs­ins.

Til­gang­ur­inn var hins vegar að lýsa virkni heims­ins, þar sem mann­legar upp­finn­ingar -hug­myndir okkar um rétt og rangt - víkja fyrir hreinu afli, sem rennir stoðum undir heims­sögu­legan darwínisma eða frum­skóg­ar­lög­máli. Eins og oft í líf­inu og heims­sög­unni tog­ast á frum­reglur um átök eða sam­vinnu, en nú eru átökin orðin ofan á.

„Stríðs­glæpa­maður“ og „villi­menn“

Hinn 76 ára gamli Net­anyahu hefur lengi átt sér þann draum að ráða nið­ur­lögum klerka­stjórn­ar­innar í Íran, sem hefur ítrekað hótað ger­eyð­ingu Ísraels. Mál gegn honum hefur verið opnað fyrir Alþjóða­glæpa­dóm­stólnum í Haag þar sem hann er „tal­inn bera ábyrgð á stríðs­glæpum sem fel­ast í notkun hung­ursneyðar sem stríðs­að­ferðar og að beina árásum af ásettu ráði gegn almennum borg­urum; og glæpum gegn mann­kyni sem fel­ast í morðum, ofsóknum og öðrum ómann­úð­legum athöfnum frá að minnsta kosti 8. októ­ber 2023 til að minnsta kosti 20. maí 2024.“

Sjálfur sér hann þó sig og Donald Trump sem bjarg­vætti sið­menn­ingar and­spænis villi­mönnum. „Vitið þið, ef fólk vill vera barna­legt, þá sér það ekki hvers konar heimi við búum í,“ sagði Net­anjahú við blaða­menn og hélt svo áfram.

Í heims­mynd Net­anja­hús er geta til hern­aðar lyk­ill­inn og sið­ferð­is­leg staða kemur síðar. Heim­spekin minnir um margt á þær kenn­ingar um heim­inn sem Stephen Miller, hægri hönd og þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, færði fram á sama tíma og hann rök­færði yfir­töku Banda­ríkj­anna á Græn­landi. Í stað þess að horfa til sam­starfs NATO-þjóða á jafn­ræð­is­grund­velli, sagði hann að Banda­ríkin væru „valdið í NATO“. „Við lifum í veru­leik­anum, raun­veru­leik­anum, sem er stýrt af styrk, sem er stjórnað með afli, sem er stjórnað með valdi,“ sagði hann. „Þetta eru járn­lög heims­ins frá upp­hafi tíma.“

Jesús eigi ekki roð í Genghis Khan

Net­anjahú, rétt eins og Miller og yfir­maður hans, Donald Trump, boðar raun­sæ­is­stefnu eða real­isma sem gengur út á að hið hráa vald ráði för. Það er að segja, getan til vald­beit­ingar ræður en ekki reglur sem sam­fé­lag manna búa til um boð og bönn.

„Í þessum heimi er ekki nóg að vera sið­ferð­is­legur. Það er ekki nóg að vera rétt­látur. Það er ekki nóg að hafa rétt fyrir sér. Einn af merk­ustu rit­höf­undum 20. aldar, maður sem ég dáist mikið að, var sagn­fræð­ing­ur­inn Will Durant. Hann skrif­aði mörg bindi. Ég hef lesið flest þeirra. Hann skrif­aði einnig „Lærdóma sög­unnar“, mjög stutta, 100 blað­síðna bók, þar sem hann sagði að sagan sann­aði því miður að Jesús Kristur hefði ekk­ert for­skot á Gengis Khan. Því ef þú ert nógu sterkur, nógu mis­kunn­ar­laus, nógu valda­mik­ill, mun illskan sigra gæsk­una. Árás­ar­girni mun sigra hóf­semi,“ sagði Net­anjahú.

Hann hefur legið undir ámæli fyrir að smána Jesú Krist með orðum sínum og sam­an­burði við Genghis Khan, grimman leið­toga mongólska heims­veld­is­ins á 12. og 13. öld.

Skilaboð hans eru hins vegar ekki að Jesú hafi verið síðri, heldur að rétt breytni sé trompuð af vald­inu. Þess ber að geta að í Gyð­ing­dómi, sem Net­anjahú fylgir, er ekki stað­hæft að Jesús hafi verið sonur Guðs, eða hluti af „heil­agri þrenn­ingu“, eins og í krist­inni trú, enda gangi það gegn ein­gyð­istrúnni.

Í Múhammeðstrú er Jesús tal­inn hafa verið spá­maður, en þó mennskur, og að hann hafi ekki verið kross­festur, heldur lyft til himna lif­andi. Þá muni hann snúa aftur til jarðar til að sigr­ast a and­kristi. Hann muni síðar, með full­tingi Guðs, taka stjórn á heim­inum, koma á friði, deyja nátt­úru­legum dauð­daga og verða graf­inn við hlið Múhammeðs í Medina.

Orð Net­anja­hús, sem eru til­vitnun í sagn­fræð­ing­inn Will Durant, eru þó látin falla í sam­hengi og aðstæðum sem sýna að áherslan á lög, reglur og sið­ferði skipti ekki lengur máli. Undir for­ystu Net­anja­hús hefur Ísra­els­ríki gengið lengra og lengra í því að drepa almenna borg­ara, eyða byggðum þeirra og horfa í aðra átt þegar ólög­legt land­nám Ísraela í byggðum Palest­ínu­manna  leiðir til kerf­is­bund­ins ofbeldis gegn þeim síð­ar­nefndu.

Villi­menn við hliðið

Annar liður í heims­mynd ráð­andi afla í Banda­ríkj­unum og Ísrael, ofan á frum­speki­lega valda­hyggju, er að æðri sið­menn­ing þeirra eigi í vök að verj­ast gegn ósið­mennt­uðum hópum eða þjóðum.

„Við erum, við verðum að vera sterk. Við verðum að vera vopnuð. Við verðum að vera valda­meiri en villi­menn­irnir,“ sagði Net­anjahú við blaða­menn­ina. „Annars verða þeir ekki aðeins við hliðið. Þeir munu brjóta niður hliðin okkar og eyði­leggja sam­fé­lög okkar. Það er það sem Ísrael er að gera núna með Banda­ríkj­unum.“

Þá sagði hann að Ísrael væri að „vernda allan heim­inn“ með „frá­bærum vinum sínum frá Banda­ríkj­unum“.

„Heim­ur­inn stendur í djúpri þakk­ar­skuld við Trump for­seta fyrir að leiða þetta átak til að tryggja fram­tíð okkar. Takk fyrir,“ sagði Net­anyahu og vís­aði þar til for­seta nýs Frið­ar­ráðs.

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Frá sjónarhóli "skrímslana" eru þau sem kalla þau skrímsli, "skrímslin".
    0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Everything Is a Rich Man’s Trick
    https://youtu.be/4oVpt_I9iQQ?si=pSiO31DebX4y3Mhb
    0
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Hver er tilgangur lífsins fyrir fólk eins og Netanyahu og Trump ... einfaldlega að skapa eins mörg fórnarlömb og mögulegt er? Hvers konar líf er það? Það mikilvægasta er að láta ekki draga sig inn í að hafa sömu gildi og slíkir skrímsli.
    1
  • GDE
    Guðrún Dagný Einarsdóttir skrifaði
    Mig grunar sterklega að bæði Trump og Netanyahu verði skráðir í grúppu með Hitler og öðrum mannfjandsamlegum harðstjórum sögunnar frekar en með mannvinum og stórmennum.
    3
  • Magni Hjálmarsson skrifaði
    Er það fullvalda ríki sem þarf að "Leggjast lágt" á þennan hátt gagnvart öðrum ríkjum? Sungum við ungir Akureyringar ekki á öskudaginn og veifuðum trésverðunum stuttu eftir Lýðveldisstofnun: "Skundum á Þingvöll og treystum vor heit"? Okkur hafði verið kennt að við ættum ekki að láta erlent vald kúga okkur í framtíðinni. Hvað er nú breytti í þessu efni Haarde og Grímsson???
    2
  • GÞE
    Garðar Þröstur Einarsson skrifaði
    Vinsamlega skrifa mig sem innskráðan Þröst Einarsson
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár