Stephen Miller Einn nán­asti ráð­gjafi Donalds Trump, sem stendur hér á svið­inu með for­set­anum á blaða­manna­fundi um hernað og stjórn­ar­skipti í Venes­ú­ela, segir að heim­inum sé stjórnað af afli og ljóst sé að for­seti Banda­ríkj­anna vilji inn­lima Grænland í Banda­ríkin. Mynd: AFP

„Bandaríkin eru valdið í NATO“

„Við lifum í veru­leik­anum,“ segir Stephen Miller, einn helsti ráð­gjafi Banda­ríkja­stjórnar, og telur að eng­inn muni berj­ast gegn þeim vilja Banda­ríkj­anna að yfir­taka Grænland.

Banda­ríkin munu ekki þurfa að beita valdi til að taka Grænland, sem er stefna stjórn­ar­innar þar, að sögn ráð­gjafa Banda­ríkja­for­seta.

Einn æðsti ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta segir það skýra afstöðu Banda­ríkja­stjórnar og Donalds Trump frá fyrra kjör­tíma­bili að Grænland ætti að vera hluti Banda­ríkj­anna.

Stephen Miller, sem hefur meðal ann­ars verið með hlut­verk aðstoð­ar­starfs­manna­stjóra Hvíta húss­ins og ráð­gjafi Heima­varna­ráðu­neyt­is­ins, lét ummæli falla í við­tali við CNN í nótt eftir að eig­in­kona hans birti kort af Græn­landi þakið banda­ríska fán­anum. Miller hefur sterka stöðu innan Trump-stjórn­ar­innar og stóð meðal ann­ars á svið­inu þegar Donald Trump hélt blaða­manna­fund um hern­að­ar­að­gerð í Venes­ú­ela, þar sem for­seti lands­ins var hand­tek­inn.

Miller snýr við sönn­un­ar­byrð­inni og segir Danmörku þurfa að útskýra á hvaða grund­velli kon­ung­dæmið „geri til­kall til land­svæð­is­ins“, frekar en að Banda­ríkin þurfi að rétt­læta yfir­töku, enda hafi Banda­ríkin valdið.

Í við­tal­inu var hann spurður hvort hann úti­lok­aði hern­að­ar­að­gerð, en neit­aði að svara því.

„Banda­ríkin ættu að hafa Grænland sem hluta af Banda­ríkj­unum. Það er engin ástæða til að hugsa eða tala um þetta í sam­hengi við hern­að­ar­að­gerð. Enginn er að fara að berj­ast við Banda­ríkin hern­að­ar­lega yfir fram­tíð Græn­lands,“ sagði hann.

„Við lifum í veru­leik­anum, raun­veru­leik­anum, sem er stýrt af styrk, sem er stjórnað með afli, sem er stjórnað með valdi,“ sagði hann. „Þetta eru járn­lög heims­ins frá upp­hafi tíma.“

Stephen MillerHefur verið í innsta hring Trumps frá árinu 2016.

„Banda­ríkin eru valdið í NATO“

Aðspurður nánar um hugs­an­lega hern­að­ara­að­gerð segir Miller að hún myndi ekki bein­ast gegn Græn­landi. „Grænland er með þrjá­tíu þús­und íbúa. Raun­veru­lega spurn­ingin er hvaða rétt Danmörk hefur til að stjórna Græn­landi. Hver er grund­völlur kröfu þeirra til land­svæð­is­ins? Hver er grund­völlur þeirra fyrir því að hafa Grænland sem nýlendu Dan­merkur? Banda­ríkin eru valdið í NATO. Fyrir Banda­ríkin, að tryggja heim­skauta­svæðin, vernda NATO og hags­muni NATO, ætti Grænland aug­ljós­lega að vera hluti af Banda­ríkj­unum.“

Íbúar Græn­lands eru tæp­lega 57 þús­und og er Grænland hluti af danska kon­ung­dæm­inu. Samkvæmt sjálfs­stjórn­ar­samn­ingi frá árinu 2009 hefur Grænland rétt á að lýsa yfir sjálf­stæði að und­an­geng­inni þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Í síð­ustu þing­kosn­ingum fór sá flokkur með sigur af hólmi sem vildi fara hægt í aðskilnað frá Danmörku, frekar en hratt.

Hann sagði að sam­fé­lag þjóða myndi fara í gegnum það ferli að Grænland verði hluti Banda­ríkj­anna.

„Til að vernda heim­skauta­svæðin og til að vernda NATO, aug­ljós­lega ætti Grænland að vera hluti af Banda­ríkj­unum. Það er sam­tal sem við munum eiga sem land og það er ferli sem við munum ganga í gegnum sem sam­fé­lag þjóða,“ ítrek­aði Miller.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagði í gær að grunn­stoðir örygg­is­stefnu Íslands væru aðild að NATO og varn­ar­samn­ingur við Banda­ríkin. Hún sagði að þær stoðir „stæðu óhagg­aðar“.

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Why doesn't Denmark call for activation of Article 5 of the NATO Agreement!?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár