Tekist á um þingskaparlög: „Rífast um keisarans skegg“

Það var hart tek­ist á um þing­skap­ar­lög á Al­þingi og hvort það eigi að kynna þings­álykt­un­ar­til­lögu um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um við­ræð­ur við Evr­ópu­sam­band­ið fyr­ir utran­rík­is­mála­nefnd. Lít­ið var þó rætt um þings­álykt­un­ina sjálfa.

Tekist á um þingskaparlög: „Rífast um keisarans skegg“
Þorgerður og Guðlaugur Utanríkisráðherra heldur ræðu á meðan þingmaður Sjálfstæðisflokksins, Guðlaug urÞór Þórðarson, hlustar af einbeitingu. Mynd: Golli

Minnihlutinn kom vígreifur til leiks undir liðnum um fundarstjórn forseta á Alþingi í dag þar sem Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, reið á vaðið. Þar sakaði hún utanríkisráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, um að hafa farið á svig við þingskaparlög þegar hún neitaði að mæta á fund utanríkismálanefndar til þess að ræða þingsályktunartillögu meirihlutans um þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Aðrir þingmenn minnihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Miðflokks og Framsóknar, tóku undir þessi sjónarmið og sögðu þingskaparlög brotin.

Greinin sem um ræðir hljóðar svo: Utanríkismálanefnd skal, auk verkefna sem hún hefur skv. 13. gr., vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál enda skal ríkisstjórnin ávallt bera fyrir fram undir hana slík mál jafnt á þingtíma sem í þinghléum, nema brýn nauðsyn banni.]

„Í guðanna bænum, treystið þjóðinni“

Þingmaður Miðflokksins, Sigríður Á. Andersen, bætti við að aðdragandinn að tilkynningu um þingsályktunartillöguna væri að sama skapi gagnrýnisverður og nefndi þá …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Málflutningurinn stjórnarandstöðunar er aumkunarverður: að láta eins og umræðan snúist nú þegar um aðild að ESB er að gera kjósendur að fífli.
    Málið núna er að ræða við ESB og sjá hvað er í boði. Auðvitað getur það í framhaldinu leitt að kosningu um aðildina sjálfa - en hvað er það sem stjórnarandstæðan óttast svo mjóg að hún vill kæfa það ferli í byrjun?
    Merkilegt að sömu flokkarnir sem börðust gegn veiðigjaldafrumvarpinu skulu vera svo eindregnir á móti ESB - hvað hafa þeir að tapa?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Skilaboðin á bakvið myndirnar: Forsetinn í hlutverki konungs, páfa og Jesú
4
Greining

Skila­boð­in á bakvið mynd­irn­ar: For­set­inn í hlut­verki kon­ungs, páfa og Jesú

Tími gervi­greind­ar runn­inn upp í banda­rísk­um stjórn­mál­um. For­set­inn birt­ir mynd­ir af sér sem hetj­um og and­stæð­ing­um sem aul­um, sem tala beint inn í orð­ræðu hans og styðja við hug­mynd­ir sem stuðn­ings­menn hans hafa þeg­ar sam­þykkt. Sum­ar mynd­irn­ar eru svo raun­veru­leg­ar að þær setj­ast djúpt í und­ir­með­vit­und­ina.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
1
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.
Krefjast tæps milljarðs af félagi þingmanns
2
Stjórnmál

Krefjast tæps millj­arðs af fé­lagi þing­manns

Kröf­ur upp á 981 millj­ón eru und­ir í beiðni um nauð­ung­ar­sölu á lóð­um fé­lags­ins Rend­er Centi­um ehf. í Mos­fells­bæ. Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur Mið­flokks­ins, og fað­ir hans eiga fé­lag­ið sem átti að byggja þjón­ustu­íbúð­ir fyr­ir aldr­aða á lóð­inni en hef­ur rift samn­ingn­um. Mál­ið varp­ar ljósi á bygg­ing­ar­verk­efni þing­manns­ins víða um land en hann seg­ist sína að­komu ekki tíma­freka.
Kalla eftir alþjóðlegum aðgerðum gegn „öfgafullu vinstri fólki“
6
ErlentBandaríki Trumps

Kalla eft­ir al­þjóð­leg­um að­gerð­um gegn „öfga­fullu vinstri fólki“

Ut­an­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna seg­ir „hryðju­verka­fólk“ und­ir yf­ir­skini „jafn­rétt­is, rétt­læt­is og frels­is“ vera „ein­staka illsku“. Stephen Miller, hægri hönd for­set­ans, seg­ir vinstri­menn dreifa „krabba­meini“ í sam­fé­lag­inu. „Þau eru öll af­mynd­uð á ein­hvern hátt í út­liti, klæða­burði og hátta­lagi,“ seg­ir hann.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Sagt upp í Ráðhúsinu þar sem hún lá á bráðamóttöku
6
Innlent

Sagt upp í Ráð­hús­inu þar sem hún lá á bráða­mót­töku

Þeg­ar Hólm­fríð­ur Helga Sig­urð­ar­dótt­ir lagði hjólandi af stað í vinn­una í síð­ustu viku grun­aði hana ekki hvað var í vænd­um. Hún varð fyr­ir bíl og þar sem hún lá slös­uð á bráða­mót­töku var henni sagt upp störf­um sem upp­lýs­inga­full­trúi í Ráð­hús­inu. Hún seg­ir frá því þeg­ar hún fékk „ tvö rot­högg á ein­um ör­laga­rík­um degi“.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár