Svarar Trump: „Nei við stríði“

For­sæt­is­ráð­herra Spánar svarar hót­unum Donalds Trump og seg­ist ekki vilja vera sam­sekur í Írans­stríð­inu.

Svarar Trump: „Nei við stríði“
Pedro Sanchez For­sæt­is­ráð­herra Spánar svarar hót­unum Banda­ríkja­for­seta. Mynd: AFP

Pedro Sánchez, for­sæt­is­ráð­herra Spánar, svar­aði í morgun gagn­rýni og hót­unum Donalds Trumps, for­seta Banda­ríkj­anna, vegna þeirrar ákvörð­unar Spán­verja að leyfa ekki banda­rískum flug­vélum að nota her­stöðvar sínar til árása á Íran.

„Afstöðu spænsku rík­is­stjórn­ar­innar má draga saman í þremur orðum: Nei við stríði,“ sagði hann í sjón­varps­ávarpi, degi eftir að Trump hót­aði að slíta öllum við­skiptum við Spán.

„Við munum ekki verða sam­sek í ein­hverju sem er skað­legt fyrir heim­inn og gengur gegn gildum okkar og hags­munum, ein­fald­lega af ótta við hefnd­ar­að­gerðir,“ sagði Sánchez.

„Spánn hefur verið hræði­legur,“ sagði Trump við frétta­menn þegar hann hitti Friedrich Merz, kansl­ara Þýska­lands, í Hvíta hús­inu í gær.

„Við ætlum að slíta öllum við­skiptum við Spán. Við viljum ekk­ert með Spán hafa.“

Rík­is­stjórn Spánar hefur staðið fast við þá afstöðu að fylgja beri alþjóða­lögum og stofnsátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Brotið hefur verið gegn þeim síð­ustu ár í hót­unum Banda­ríkj­anna gegn Græn­landi, aðgerðum gegn Venes­ú­ela, árásum á Gaza og inn­rásinni í Úkraínu.

„Sumir munu segja að við séum ein í þess­ari von, en það er heldur ekki satt. Rík­is­stjórn Spánar stendur með þeim sem hún á að standa með, hún stendur með þeim gildum sem for­eldrar okkar og afar og ömmur festu í stjórn­ar­skrá okkar. Spánn stendur með grund­vall­ar­reglum Evr­ópu­sam­bands­ins, hann stendur með stofnsátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ sagði Sánchez í morgun.

For­sæt­is­ráð­herr­ann nefndi Trump ekki á nafn í ávarpi sínu og minnt­ist ekki á notkun spænsku her­stöðv­anna í Rota og Morón, sem var kveikjan að hótun Banda­ríkja­for­seta. Ræða hans var hins vegar full af óbeinum til­vís­unum og vörn fyrir full­veldi og stöðu Spánar gagn­vart hót­unum frá Trump.

„Það er algjör­lega óásætt­an­legt að þeir leið­togar sem eru ófærir um að sinna því verk­efni – að bæta líf fólks – noti þoku stríðs­ins til að hylma yfir eigin mis­tök og fylla um leið vasa fárra, þeirra sömu og alltaf,“ sagði hann.

Kjósa
59
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Er Pedro Sánchez virkilega eini leiðtogi heims sem þorir ??????
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið

2
Erlent

Olíu­risarnir græða stórfé á stríð­inu í Mið-Aust­ur­löndum

Hagnaður þriggja stærstu olíu- og gas­fyr­ir­tækja Evrópu nam sam­tals rúm­lega 25 millj­örðum Banda­ríkja­dala á þriðja árs­fjórð­ungi. Stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hefur leitt til hækk­andi orku­verðs og auk­innar fram­legðar í olíu­hreinsun. Fyr­ir­tækin hagn­ast á sama tíma og hærra elds­neyt­is­verð og aukin verð­bólga þrengja að heim­ilum og fyr­ir­tækjum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár