Uppnám í Evrópusambandinu

Utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands „furðu lost­inn“ eftir að Ung­verjar stöðv­uðu stuðn­ing við Úkraínu.

Uppnám í Evrópusambandinu
Kaja Kallas Utan­rík­is­mála­stjóri Evr­ópu­sam­band­ins ræddi við frétta­menn í Brussel í morgun. Mynd: AFP

Æðsti erind­reki Evr­ópu­sam­bands­ins sagði að hún bygg­ist ekki við að sam­komu­lag næð­ist um nýjar refsi­að­gerðir gegn Rúss­landi í dag eftir að Ung­verja­land hét því að beita neit­un­ar­valdi gegn þeim nema Úkraína opn­aði aftur mik­il­væga olíu­leiðslu.

Banda­lagið, sem telur 27 ríki, hefur þrýst á um að setja nýja lotu efna­hags­legra refsi­að­gerða á stjórn­völd í Moskvu á fjög­urra ára afmæli alls­herj­ar­inn­rásar Rússa í Úkraínu á morgun.

„Ég held að það verði engar fram­farir í þessu í dag, en við munum örugg­lega halda þessu áfram,“ sagði Kaja Kallas, utan­rík­is­mála­stjóri ESB, í upp­hafi fundar utan­rík­is­ráð­herra ESB.

Viktor Orban, for­sæt­is­ráð­herra Ung­verja­lands – sá leið­togi ESB sem er hvað vin­gjarn­leg­astur í garð stjórnar Vla­dimirs Pútíns í Rúss­landi – sagði í gær að Ung­verjar myndu beita neit­un­ar­valdi gegn refsi­að­gerðum þar til Druzhba-olíu­leiðslan yrði opnuð aftur.

„Á meðan það ger­ist ekki, verður engin breyt­ing á afstöðu Ung­verja­lands,“ sagði Peter Szijjarto, utan­rík­is­ráð­herra Ung­verja­lands, við blaða­menn þegar hann kom …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    The hysterical EU sanctionism is pathological! One shouldn't be surprised if Trump lifts all sanctions because he reaches a deal with Russia! In that case EU sanctions simply become obsolete! The fact remains that thus far the sanctions have cost the EU more than Russia!
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Hann Orban hefur haft fjögur ár að aðlagast nýjum aðstæðum. Ef olíuleiðslan er ennþá nauðsynleg fyrir Ungverjaland er bara hans eigin vangetu eða aðgerðarleysi um að kenna.
    Hins vegar hefur hann alltaf verið hallur undir Putin, varla nein refsiaðgerð sem Orban hefur ekki lagt stein í götu.
    2
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er einhver vandi að útvega Ungverjum olíu, eða er þetta hreint skemmdarverk af hálfu Orbans og félaga?
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár