Skora á fyrirtæki að hvetja til fjarvinnu út af svifryksmengun

Mikil svifryks­mengun er í borg­inni og við­búið að svo haldi áfram á morgun. Við­kvæmir, aldr­aðir og börn ættu að forð­ast úti­vist í lengri tíma.

Skora á fyrirtæki að hvetja til fjarvinnu út af svifryksmengun
Svifryk Gyllt þoka svifryks­ins liggur yfir borg­inni. Mynd: Golli

Reykja­vík­ur­borg skorar á fyr­ir­tæki að hvetja starfs­fólk til að vinna fjar­vinnu á svifryks­dögum sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er, en styrkur svifryks í borg­inni mæld­ist hár sam­kvæmt loft­gæða­mæli­stöðvum borg­ar­innar í morgun. Útlit er fyrir óbreytt veður á morgun, og við­búið að meng­unin hald­ist sams­konar og í dag.

Þetta kemur fram í við­vörun frá heil­brigð­is­eft­ir­liti Reykja­víkur. Þar segir að styrkur svifryks (PM10) hafi mælst hár á loft­gæða­mæli­stöðum í borg­inni í morgun. Uppruni ryks­ins er frá umferð en þar sem götur eru þurrar og hægur vindur þyrl­ast það frekar upp og helst á lofti.

Klukkan 12.00 var gildið fyrir PM10 93,4 míkrógrömm á rúmmetra í mæli­stöð­inni við Grens­ás­veg en til sam­an­burðar má benda á að sól­ar­hrings­heilsu­vernd­ar­mörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Þá segir að götur hafi verið ryk­bundnar aðfara­nótt mið­viku­dags en vegna aðstæðna nægir ryk­bind­ingin ekki til að halda mengun innan marka. Ryk­bind­ing er sam­vinnu­verk­efni Reykja­vík­ur­borgar og Vega­gerð­ar­innar.

Þeir sem eru við­kvæmir fyrir í önd­un­ar­færum, aldr­aðir og börn ættu að forð­ast úti­vist í lengri tíma og tak­marka áreynslu að því er greint er frá í til­kynn­ingu.

Almenn­ingur er hvattur til þess að draga úr notkun einka­bíls­ins ef unnt er, til dæmis geyma ferðir sem ekki eru aðkallandi, nýta sér frekar almenn­ings­sam­göngur, sam­ein­ast í bíla eða nota aðra vist­væna sam­göngu­máta. Skorað er á fyr­ir­tæki að hvetja starfs­fólk til að vinna fjar­vinnu á svifryks­dögum sé þess kostur og draga úr akstri ef hægt er.

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur fylgist náið með loft­gæðum borg­ar­innar og sendir frá sér við­var­anir og leið­bein­ingar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgj­ast með styrk svifryks og ann­arra meng­andi efna á loft­gæði.is. Þar má sjá kort yfir mæli­staði í Reykja­vík og ann­ars staðar á land­inu.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JS
    Jónína Sigurgeirsdóttir skrifaði
    Það er skrýtið að sjá og heyra umfjöllun um að svifriksmengun sé aðallega vegna notkunar nagladekkja. Ég var á ferð um síðustu helgi og þessi gyllta, brúnleita mengunarmóða fylgdi okkur langleiðina frá Mosfellsbæ og austur fyrir Kirkjubæjarklaustur. Augljóst er að flestir loftgæðamælar eru í þéttbýlinu, (Reykjavík, Akureyri) og þar er mæld ótæpileg mengun, en mengunin var ekkert minni utan þéttbýlisins. Ég trúi ekki að nagladekk hafi megináhrif á mengun upp úr farvegi Skaftár og Kúðafljóts fyrir Austan. Auk þess að hugsa til nagladekkja, langar mig að kenna um þetta eldgosum, öskufalli, jökulhlaupum og langvarandi þurrkatíð. Með kveðju, Jónína Sigurgeirsdóttir.
    0
  • Sigurður Einarsson skrifaði
    Stærsta vandamálið við svifryksmengun í Reykjavík er notkun nagladekkja á bílum. Betra er að ráðast beint að vandamálinu; það þarf bæði að reyna að minnka notkun slíkra dekkja, og auðvitað líka minnka notkun einkabílsins. Þetta væri t.d. hægt að gera með hærri skattlagningu á nagladekk, þar sem buddan ræður mestu um hegðun fólks.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár