Sautján ára piltur lést á Miklubraut

Tveir ung­ir pil­ar lentu í slys­inu. Kyrrð­ar­stund hald­in í Ár­bæj­ar­kirkju.

Sautján ára piltur lést á Miklubraut
Frá Miklubraut Slysið varð nærri Breiðholtsbraut, þar sem Miklabraut liggur fram hjá Hjálpræðishernum. Mynd: Jón Trausti Reynisson

Sautján ára piltur lést í umferðarslysinu á Miklubraut i Reykjavík í gærkvöldi. Hann var farþegi í bifreið sem var ekið austur Miklubraut þegar slysið varð, á móts við hús Hjálpræðishersins.

Ökumaðurinn, piltur á sama aldri, slasaðist töluvert og er líðan hans eftir atvikum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

Boðað hefur verið til kyrrðarstundar í Árbæjarkirkju í dag klukkan 16 vegna slyssins.

„Í ljósi sorglegs slyss sem varð í gær verður haldin kyrrðarstund í Árbæjarkirkju í dag. Séra Þór Hauksson leiðir stundina og Guðmundur organisti leikur undir. Gestum gefst kostur á að tendra kerti í friði og hljóðri minningu. Kyrrðarstundin hefst klukkann 16:00 og eru allir hjartanlega velkomnir,“ segir í tilkynningu Árbæjarkirkju á Facebook.

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
5
StjórnmálHorft til Evrópu

Þrátt fyr­ir nei „lok­um við að sjálf­sögðu ekki á Evr­ópu“

For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unn­ar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evr­ópu eða grafa und­an EES-samn­ingn­um. Orð henn­ar falla á sama tíma og stjórn­ar­and­stað­an vill stað­fest­ingu á stöðu að­ild­ar­um­sókn­ar­inn­ar og frum­varp um bók­un 35 ligg­ur aft­ur fyr­ir Al­þingi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár