Ósátt við launahækkanir og boða meira atvinnuleysi

Seðla­bank­an­um er að tak­ast að „ýta hag­kerf­inu í kóln­un“, að sögn seðla­banka­stjóra. Hann gagn­rýn­ir launa­hækk­an­ir og seg­ir verka­lýðs­fé­lög varla geta „heimt­að launa­hækk­an­ir“. Hins veg­ar jókst verð­bólg­an vegna að­gerða rík­is­stjórn­ar­inn­ar.

Ósátt við launahækkanir og boða meira atvinnuleysi
Ásgeir Jónsson Hefur reglulega varað við áhrifum launahækkana. Mynd: Golli

Seðlabankastjóri gagnrýndi í morgun launahækkanir almennings, í kjölfar þess að peningastefnunefnd Seðlabankans, sem hann veitir formennsku, ákvað að halda vöxtum óbreyttum í 7,25%. Vextirnir eru þeir hæstu í Evrópu utan stríðssvæða og einræðisríkja.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri gagnrýndi á fundinum enn á ný launahækkanir, sem hafa verið 7 til 8 prósent á einu ári, samkvæmt launavísitölu. Opinberir starfsmenn hafa hins vegar leitt launahækkanirnar síðastliðið ár.

„Enn sem komið er er eitt helsta vandamál peningastefnunnar mjög heitur vinnumarkaður og miklar launahækkanir,“ sagði Ásgeir á fundi peningastefnunefndar í morgun. „Einn stærsti vandi síðustu fjögurra, fimm ára, er að launahækkanir hafa verið miklu meiri heldur en samrýmist verðbólgumarkmiði.“ 

Hann sagði þó að það væri „aukin kólnun á vinnumarkaði“. 

„Við bindum vonir við að það hægi á launahækkunum, en ég meina, það datt inn fjögur prósent hækkun launa í byrjun janúar,“ bætti hann við, en í …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Afsökunarbeiðnir, afsagnir, konungleg reiði: Afleiðingar nýjustu Epstein-skjalanna
6
Skýring

Af­sök­un­ar­beiðn­ir, af­sagn­ir, kon­ung­leg reiði: Af­leið­ing­ar nýj­ustu Ep­stein-skjal­anna

Ný birt­ing Ep­stein-skjala dreg­ur fram víð­tæk og nán­ari tengsl þekktra valda­manna og áhrifa­fólks við kyn­ferð­is­brota­mann­inn látna. Af­sak­an­ir, af­sagn­ir og kröf­ur um rann­sókn fylgja í kjöl­far­ið, með­al ann­ars hjá kon­ungs­fjöl­skyld­um, stjórn­mála­mönn­um og emb­ætt­is­mönn­um í Evr­ópu og Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár