Rússar segja stefna í hættulega stöðu vegna kjarnorkuvopna

Eftir nokkra daga verður „heim­ur­inn í hættu­legri stöðu en nokkru sinni fyrr“, segir tals­maður Pútíns.

Rússar segja stefna í hættulega stöðu vegna kjarnorkuvopna
Dmitry Peskov Tals­maður stjórn­valda í Kreml varar við því að Nýi START-.samn­ing­ur­inn sem hemja á kjarn­orku­vopna­eign muni renna út. Mynd: NATALIA KOLESNIKOVA / AFP

Rússnesk stjórn­völd vör­uðu við því í dag að „hættu­legar“ aðstæður væru framundan í heim­inum, þar sem síð­asti kjarn­orku­samn­ingur Banda­ríkj­anna og Rúss­lands rennur út í þess­ari viku.

„Eftir örfáa daga verður heim­ur­inn í hættu­legri stöðu en nokkru sinni fyrr,“ sagði tals­mað­ur­inn Dmitry Peskov, nokkrum dögum áður en Nýi START-samn­ing­ur­inn rennur út. Fyrsti START (Strategic Arms Reduction Treaty) var und­ir­rit­aður 1991 af Banda­ríkj­unum og Sov­ét­ríkj­unum, skömmu áður en þau síð­ar­nefndu leyst­ust upp. Samn­ing­ur­inn setti þak á eign kjarn­orku­odda við 6.000 og lang­drægar eld­flaugar og sprengju­þotur við 1.600.

Stjórn Vla­dimirs Pútín for­seta, sem hefur boð­ist til að fram­lengja nokkur ákvæði samn­ings­ins, bætti við að tvö stærstu kjarn­orku­veldi heims „verða eftir án grund­vall­ar­skjals sem myndi tak­marka og hafa eft­ir­lit með þessum vopna­búrum.“

Einn her­ská­asti emb­ætt­is­maður Rúss­lands, fyrr­ver­andi for­set­inn Dmitry Medvedev, var­aði í gær sömu­leiðis við stöð­unni. Medvedev skrif­aði undir Nýja START samn­ing­inn sem for­seti árið 2010. Hann sagði að þetta myndi „flýta dóms­dags­klukk­unni“.

„Ég vil ekki halda því fram að þetta muni þegar í stað leiða af sér hörm­ungar og kjarn­orku­stríð, en allir ættu að ótt­ast þetta,“ sagði Medvedev í við­tali við rúss­neskan stríðs­blogg­ara.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur gefið til kynna að hann muni láta samn­ing­inn renna út. „Ef hann rennur út rennur hann út,“ sagði hann í sam­tali við New York Times.  „Við gerum bara betri samn­ing“. 

Banda­ríkin hafa viljað að Kína, sem hefur stór­eflt kjarn­orku­vopna­búr sitt, taki þátt í samn­ingnum, en stjórn­völd þar hafa ekki lýst á huga á því, enda stefna þau að því að jafna Rússa og Banda­ríkja­menn.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Indverjar eru farnir framúr Kína hvað mannfjöldann varðar þá er rússlandnúmer þrjú næst koma Bandaríkin númer fjögur svo er öll Evrópa samanlagt númer sexsvoþar áundan eru þá öll hin asíuríkin ef þau tækjusignúsaman með það aðmyndameðser sameiginlegthernaðarbandalagsem eitthvaðviterí en hvað með Afríku?hinríkinmættu lika skoðaþessamöguleika
    0
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Enginn ætti að fara í stríð. Fara ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu ef einhverju stórmenninu dytti það í hug. Þó gæti sálfræðiþjónusta verið betri.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár