Konunglega ævintýrið sem breyttist í martröð

Mette-Ma­rit varð óvænt prins­essa eft­ir líf­leg ung­dóms­ár. Nú hef­ur norska þjóð­in snú­ið baki við henni eft­ir marka­laus sam­skipti við Jef­frey Ep­stein og hand­töku son­ar henn­ar.

Konunglega ævintýrið sem breyttist í martröð

Líf Mette-Marit krónprinsessu Noregs var eitt sinn eins og ævintýri, en hefur nú breyst í martröð vegna nauðgunarákæru á hendur syni hennar og vináttu hennar við dæmda bandaríska kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Sagan af einstæðu móðurinni af alþýðuættum, sem kynntist Hákon krónprinsi fyrir tilviljun og komst þannig inn í innsta hring konungsfjölskyldunnar, vann hug og hjörtu Norðmanna.

En tíð samskipti hennar við Epstein, sem komu í ljós eftir birtingu nýrra Epstein-skjala og norskir fjölmiðlar hafa fjallað mikið um, hafa afhjúpað óvænt samband sem hefur hneykslað þjóðina.

Skýringa beðið

Jonas Gahr Støre forsætisráðherra hefur hvatt Mette-Marit til að útskýra þau fjölmörgu tölvupóstsamskipti sem hún og bandaríski auðjöfurinn áttu á árunum 2011 til 2014 – meira en áratug eftir að hún giftist Hákoni.

Epstein, sem játaði sig sekan árið 2008 um að hafa keypt kynlífsþjónustu af ólögráða einstaklingi, svipti sig lífi í fangelsi árið 2019 þegar hann beið réttarhalda vegna fleiri kynferðisbrota gegn ólögráða einstaklingum.

Álitsgjafar í Noregi hafa dregið í efa að Mette-Marit, 52 ára, eigi að verða drottning. Í skoðanakönnun sem TV2 hefur birt sögðust 47,6 prósent aðspurðra ekki vilja að hún yrði drottning, en aðeins 28,9 prósent studdu hana.

Árið 2012, þegar Epstein sagði henni að hann væri í París „í eiginkonuleit“, svaraði hún að franska höfuðborgin væri „góð fyrir framhjáhald“ og að „skandinavískar konur væru betra eiginkonuefni“.

Árið 2011, þremur árum eftir fyrsta dóm hans, skrifaði Mette-Marit til Epsteins að hún hefði „gúgglað“ hann og bætti við „það leit ekki of vel út“ og lauk setningunni með broskalli.

Árið 2013 dvaldi hún á heimili hans í Flórída í fjóra daga.

Greint hefur verið frá því að það hafi verið króatíski læknirinn Boris Nikolic sem kynnti hana fyrir Epstein, en hann hafði þá kynnst Mette-Marit á Alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos í Sviss. Í samskiptunum kom fram að hún væri „svolítið klikkuð“. 

Í síðari tölvupóstsamskiptum segir Epstein að Mette-Marit sé „algert flak“, en óljóst er af hvaða tilefni.

Játar dómgreindarleysi

„Ég sýndi af mér dómgreindarleysi og harma það innilega að hafa haft nokkur samskipti við Epstein. Þetta er einfaldlega vandræðalegt,“ sagði Mette-Marit í yfirlýsingu sem konungshöllin sendi fréttastofu AFP á laugardag.

Mannorð prinsessunnar er þannig flekkað á sama tíma og hún horfir upp á réttarhöld yfir 29 ára gömlum syni sínum, sem hún átti úr sambandi áður en hún giftist krónprinsinum.

Marius Borg Høiby á að koma fyrir dómstól í Ósló á morgun til að svara til saka í 38 ákæruliðum, þar á meðal fyrir að hafa nauðgað fjórum konum og ráðist á fyrrverandi kærustur. Hann á yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsi ef hann verður fundinn sekur.

Høiby var handtekinn aftur í gær grunaður um líkamsárás, hótanir með hnífi og brot á nálgunarbanni. Hann var úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald.

Prinsessan mun ekki vera viðstödd réttarhöldin þar sem hún hafði skipulagt einkaferð.

Lífleg ungdómsár

Mette-Marit Tjessem Høiby fæddist 19. ágúst 1973 í Kristiansand í suðurhluta Noregs, í „biblíubeltinu“. Faðir hennar var blaðamaður sem glímdi við áfengisvanda og móðir hennar bankastarfsmaður.

Hún lýsti sjálfri sér eitt sinn sem „samviskusamasta unglingi í heimi“ þar til hún varð 16 ára og fór til Ástralíu í skiptinám með skólanum sínum.

Reynslan þar varð til þess að hún braust úr viðjum og endurskilgreindi sjálfa sig.

Þegar hún sneri aftur til Noregs rakaði hún af sér hárið, trúlofaðist manni sem kynnti hana fyrir house-tónlistarsenunni í Ósló – þar sem hún prófaði hass og e-töflur, samkvæmt óopinberri ævisögu. Hún eignaðist Marius 24 ára gömul eftir stutt samband við annan mann.

„Uppreisnin mín á unglingsárunum var sterkari en hjá flestum,“ viðurkenndi hún fyrir blaðamönnum fyrir brúðkaup sitt og Hákons krónprins í ágúst 2001.

„Ég var hluti af senu þar sem farið var yfir ... mörg mörk,“ sagði hún.

Heilsubrestur

Mette-Marit hafði kynnst krónprinsinum tveimur árum áður á tónlistarhátíð.

Ferilskrá hennar var rýr á þeim tíma, en þessi glæsilega unga þjónustustúlka vann hjarta prinsins. Norska þjóðin, sem sá hlédræga framkomu hennar á opinberum vettvangi, horfði fljótlega fram hjá villtri fortíð hennar.

Hún er langt frá því að vera eini meðlimur norsku konungsfjölskyldunnar sem hefur valdið fjaðrafoki. Haraldur konungur, nú 88 ára, þurfti að heyja harða baráttu til að fá að giftast konu af „almúgaættum.

Mette-Marit og Hákon eiga tvö börn, Ingiríði Alexöndru prinsessu, 22 ára, og Sverri Magnús prins, 20 ára.

En nú eru blikur á lofti yfir fáguðu yfirbragði hennar og stöðugu brosi.

Árið 2018 greindu konungshjónin frá því að Mette-Marit þjáðist af sjaldgæfri tegund lungnatrefjunar, ólæknandi sjúkdómi sem veldur bandvefsmyndun í lungum og mæði.

Sjúkdómurinn hefur stundum knúið hana til að draga úr konunglegum skyldum sínum eða afboða sig af viðburðum, og mun líklega leiða til þess að hún þurfi að gangast undir lungnaígræðslu einhvern tíma.

Þó svo að Mette-Marit sé harðlega dæmd koma einhverjir henni til varnar. Ritstjóri Nettavisen heldur því þannig fram í leiðara að allt sem tengist Mette-Marit sé nú túlkað á versta veg og að umræðan nálgist nornaveiðar.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Vinkonur í vínframleiðslu
5
Viðtal

Vin­kon­ur í vín­fram­leiðslu

Vin­kon­urn­ar og að eig­in sögn vín­kon­urn­ar, Hrund Jó­hanns­dótt­ir og Greta Clough, fóru ný­lega í ferða­lag til Lett­lands og Eist­lands. Til­gang­ur ferð­ar­inn­ar var að kynna sér fram­leiðslu á rabarbara-freyði­víni þar í landi, eitt­hvað sem þær stöll­ur ætla sér að setja á fót hér á landi. Þær fengu ný­ver­ið styrk og stefna á að koma fyrstu vör­unni á mark­að á næsta ári.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Vinstri byltingin sem varð ekki: Af hverju sameinaðist vinstrið ekki í borginni?
5
Greining

Vinstri bylt­ing­in sem varð ekki: Af hverju sam­ein­að­ist vinstr­ið ekki í borg­inni?

Vinstri græn, Sósí­al­ist­ar og Pírat­ar eru sam­an­lagt með fimmtán pró­senta fylgi í borg­inni. Hvor í sínu lagi gætu þeir hins veg­ar ver­ið í fall­bar­áttu. Til­raun­ir voru gerð­ar til að ná sam­an um sam­eig­in­legt fram­boð fyr­ir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar, und­ir for­ystu sósí­al­ist­ans Sönnu Magda­lenu Mörtu­dótt­ur. Van­traust og skort­ur á mál­efna­legri sam­leið kom í veg fyr­ir það.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár