Kínverjar eru eins og kyrkislanga

Ung­ur veð­ur­fræð­inemi frá Taív­an ferð­að­ist til Græn­lands til að skilja norð­ur­slóð­ir – og fann þar speg­il af stöðu eig­in þjóð­ar í skugga stór­velda.

Kínverjar eru eins og kyrkislanga
Á gistiheimilinu í Nuuk leyndist ungur maður frá Taívan, menntaður í veðurfræði og loftlagsvávísindum. Í Grænlandi finnur hann hliðstæðu í Taívan. Mynd: Golli

Ungur maður frá Taívan var nýbúinn að ljúka skiptinámi í Bandaríkjunum þegar hann ákvað að nýta heimferðina til ferðalaga. Hann er menntaður í veðurfræði og loftslagsvísindum og áhugi hans á norðurslóðum leiddi hann alla leið til Grænlands. Þar fann hann ekki aðeins stórbrotna náttúru heldur einnig pólitískar og samfélagslegar hliðstæður við stöðu Taívan.

„Þótt hernaðarlega sé staðsetning Grænlands afar mikilvæg – bæði fyrir Evrópu og Bandaríkin í ljósi Rússlands og Kína – þá verður samt að virða vilja grænlensku þjóðarinnar,“ segir hann.

Hugmyndin kviknaði eftir að hann sá myndbönd frá Grænlandi á YouTube. „Landslagið er svo fallegt að ég varð að koma. Þar sem ég var staddur í Bandaríkjunum var einfaldara að fara fyrst til Íslands og þaðan áfram til Grænlands en að ferðast beint frá Taívan.“

Nánast á grasi í hundasleðaferð

Ferðin til Grænlands gekk þó ekki snurðulaust. Flugi var aflýst vegna óveðurs og dvölinni seinkaði um tvo daga. …

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RÓK
    Rúnar Óli Karlsson skrifaði
    Gleymdist að spyrja um nafnið á þessum unga manni?
    3
    • ÁJ
      Ástþór Jóhannsson skrifaði
      Það gæti verið af öryggisástæðum að það er ekki gefið upp í viðtalinu.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Landið sem enginn á

Rödd framtíðarinnar – lifði af sjálfsvígstilraun
ViðtalLandið sem enginn á

Rödd fram­tíð­ar­inn­ar – lifði af sjálfs­vígstilraun

Aqqalukkuluk Fontain býr yf­ir rödd sem hann nýt­ir til þess að miðla upp­lýs­ing­um, grein­ing­um og hugs­un­um til samlanda sinna. Hann er hin nýja rödd Græn­lands, ung­ur hug­sjóna­mað­ur sem nýt­ir sam­fé­lags­miðl­ana til að fá fólk til að hugsa og setja hlut­ina í rétt sam­hengi. Og eft­ir að hafa lif­að af sjálfs­vígstilraun hjálp­ar hann öðr­um til að lifa af – og tala um til­finn­ing­ar.
„Ég var ofbeldisfullur“
ViðtalLandið sem enginn á

„Ég var of­beld­is­full­ur“

Þeg­ar Embla Kristjáns­dótt­ir hóf sam­búð með Niels Thomassen fékk hún að kynn­ast nýrri hlið á mann­in­um sem hún elsk­aði, þar sem stjórn­semi, af­brýði­semi og reiði réðu ríkj­um. Hann gekkst við of­beld­inu, axl­aði ábyrgð og hef­ur unn­ið þrot­laust í sjálf­um sér síð­asta ára­tug. Nú miðl­ar hann reynslu sinni og hvet­ur aðra karl­menn sem glíma við sama vanda að tjá til­finn­ing­ar sín­ar og standa ber­skjald­að­ir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár