Karlmennskudýrkun og vaxandi kvenhatur í Bandaríkjunum

Eftir að full­trúi ICE-sveitar Trumps drap konu hefur MAGA-hreyf­ingin beint spjótum sínum að frjáls­lyndum konum.

Karlmennskudýrkun og vaxandi kvenhatur í Bandaríkjunum
MAGA-hreyf­ingin Stuðn­ings­menn Banda­ríkja­for­seta hafa horft til óskil­greindrar, mik­il­feng­legrar for­tíðar og vilja sumir þeirra vinda ofan af rétt­inda­bar­áttu kvenna. Mynd: Shutterstock

Fram­sæknar hvítar konur hafa lengi verið skot­spónn MAGA-hreyf­ingar Donalds Trumps for­seta, en árásir á þennan lýð­fræði­lega hóp hafa orðið sér­stak­lega grimmi­legar und­an­farnar vikur.

Fjöl­margir íhalds­samir álits­gjafar hafa brugð­ist við drápi inn­flytj­enda­lög­reglu­manns á Rene Good, 37 ára banda­rískri konu í Minn­ea­polis sem mót­mælti hörku gegn inn­flytj­endum, með því að rægja hana.

Útvarps­mað­ur­inn Erick Erickson bjó til skamm­stöfun til að lýsa Good – „AWFUL“, eða Affluent White Female Urban Liberal (vel stæð, hvít, frjáls­lynd kona úr þétt­býli).

„Hvítar frjáls­lyndar konur eru krabba­mein fyrir þjóð­ina. Þær hafa engin raun­veru­leg vanda­mál, svo þeim leið­ist“ og taka upp bar­áttu ann­arra, skrif­aði hægri­s­inn­aði grínist­inn Vincent Oshana á X.

„Þær vilja bara finn­ast þær vera mik­il­vægar.“

Dálka­höf­und­ur­inn David Marcus vís­aði á meðan með fyr­ir­litn­ingu til kven­kyns aðgerða­sinna, eins og Good, sem mót­mæltu aðgerðum Trumps í inn­flytj­enda­málum sem „skipu­lagðar klíkur af vín­mömmum“.

Kosningaréttur kvenna „harmleikur“

Árás­irnar koma sam­hliða tví­þættri sókn á hægri væng banda­rískra stjórn­mála – gegn nútíma femín­isma og með upp­risu karl­mennskuí­myndar.

Bylgja tján­ingar gegn rétt­indum kvenna reis strax eftir kjör Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, með 4600% fjölgun sam­fé­lags­miðla­færlsna með yfir­lýs­ingum eins og „þinn lík­ami, mitt val“ og „komdu þér aftur í eld­húsið“ fyrsta sól­ar­hring­inn eftir kosn­inga­sig­ur­inn í nóv­em­ber 2024.

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Um að gera að troða fylla jörðina af fólki þannig að allir enda að lokum með því að troða hvort öðru um tær í orðsins fyllstu merkingu
    1
  • GH
    Greg Hill skrifaði
    Lögreglumennirnir, allir karlar, ráðast fyrst á konur í báðum skotárásunum, og aðeins á manninn (Alex Pretti) þegar hann ver aðra þeirra. Aðrar frásagnir sjónarvotta lýsa endurteknu ofbeldi og móðgandi orðbragði gagnvart konum af hálfu lögreglunnar. Nokkur tengd atriði í þessari grein í Guardian frá 1. febrúar (https://www.theguardian.com/us-news/ng-interactive/2026/feb/01/white-supremacy-women-renee-good-ice-killing).
    1
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Er þetta ekki það sem gerir Bandaríkin mikil að nýju, að mati aðstandenda? Sama með þá, sem ætla að gera Ísland ,,mikið" aftur, og hafa m.a. útbúið húfur þess efnis að fyrirmynd hinna miklu.
    2
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þessi svokallaða karlmennskuímynd er ekkert annað en minnimáttarkennd. Þessir aðilar eru svo litlir og léttvægir af getu og hæfileikum, þannig að eina leiðin fyrir þá er að ýta öðrum niður svo þeir sýnist stærri. Ótrúleg ranghugmynd að mínu mati því merkilegasta og mikilvægast fólkið sem hvert samfélag á eru þeir sem ýta öðrum upp, hugsa um heildina en eru ekki fastir í sjálfhverfu egói. Það er stórt fólk að mínu mati en þessir kúskar eru smámenni. Karlmaður sem ýtir konu upp verður bara meiri en ekki minni fyrir vikið.
    14
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár