Evrópskur vopnaframleiðandi fær mestu fjármögnun frá upphafi í geiranum

Evrópa eykur vopna­fram­leiðslu eftir rof gagn­vart Banda­ríkj­unum og inn­rás Rússa í Úkraínu.

Evrópskur vopnaframleiðandi fær mestu fjármögnun frá upphafi í geiranum
Innrásin í Úkraínu Úkra­ínskur her­maður í Donetsk, sem Rússland Pútíns hefur reynt að inn­lima í inn­rás. Mynd: AFP

Tékk­neski vopna­fram­leið­and­inn CSG var skráður á hluta­bréfa­mark­að­inn í Amster­dam í dag og safn­aði 3,8 millj­örðum, eða 555 millj­örðum íslenskra króna, í stærsta frumút­boði (IPO) í varn­ar­mála­geir­anum í heim­inum.

Skrán­ingin metur fyr­ir­tækið, sem er lyk­il­birgir skot­færa og vopna til NATO-ríkja og Úkraínu, á 25 millj­arða evra, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu frá mark­aðnum í Amster­dam.

Á sama tíma hafa nor­rænir líf­eyr­is­sjóðir minnkað fjár­fest­ingu í banda­rískum rík­is­skulda­bréfum, sem fjár­magna halla­rekstur banda­ríska rík­is­ins. Banda­ríkja­for­seti hefur hótað „stórum hefnd­ar­að­gerðum“ ef Evrópa dregur úr þessum fjár­fest­ingum. Evr­ópu­þjóðir eiga sam­tals banda­rísk rík­is­skulda­bréf og hluta­bréf í Banda­ríkj­unum að and­virði 8 þús­und millj­arða dala en alríkið skuldar sam­tals 38 þús­und millj­arða dala.

Þetta var „stærsta frumút­boð í varn­ar­mála­geir­anum sem skráð hefur verið í heim­inum, bæði hvað varðar upp­hæð sem safn­að­ist og mark­aðsvirði,“ sagði kaup­höllin. Upphæðin jafn­gildir um fjórð­ungi af heild­ar­út­gjöldum íslenska rík­is­ins.

Samkvæmt útboðs­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins er CSG „annar stærsti fram­leið­andi með­al­stórra og stórra skot­færa í Evrópu og stærsti fram­leið­andi smærri skot­færa á heims­vísu miðað við sölu.“

Nærri 70 pró­sent af sölu þess er til NATO-ríkja og fyr­ir­tækið telur sig munu hagn­ast á því að banda­lagið auki vopna- og skot­færa­fram­leiðslu til að bregð­ast við ógn­unum frá Rúss­landi.

Á leið­toga­fundi í Haag á síð­asta ári skuld­bundu NATO-ríkin sig til að auka útgjöld til varn­ar­mála í fimm pró­sent af fram­leiðslu fyrir árið 2035.

Fyr­ir­tækið sagð­ist selja her­gögn í meira en 70 löndum um allan heim og vera með 14.000 starfs­menn.

CSG var stofnað í Tékk­landi en hefur einnig verk­smiðjur á Indlandi, Ítalíu, Serbíu, Slóvakíu, Spáni, Bret­landi og í Banda­ríkj­unum.

Michal Strnad, stjórn­ar­for­maður CSG, fagn­aði því sem hann kall­aði „sögu­legan áfanga“ með frumút­boð­inu.

„Við erum stolt af sam­setn­ingu tékk­neskrar iðn­að­ar­arf­leifðar okkar og alþjóð­legrar fram­leiðslu okkar,“ bætti þessi 33 ára frum­kvöð­ull við.

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár