Hrakfallasaga Kársnesskóla: Kostnaður kominn í tæpa 8 milljarða

Upp­bygg­ing Kárs­nes­skóla hefur verið sann­kölluð þrauta­ganga. Bærinn rifti samn­ingum við fyrsta verk­taka, og sá næsti fór í þrot í miðju verki. Nið­ur­staðan er helm­ingi dýr­ari skóli en upp­haf­lega var stefnt að.

Hrakfallasaga Kársnesskóla: Kostnaður kominn í tæpa 8 milljarða
Eftir mikla og efiða sögu, hefur skól­inn verið tek­inn í gagnið. Þó er ýmis­legt ógert eins og sjá má af mynd­inni. Mynd: Golli

Kostn­aður vegna fram­kvæmda við Kárs­nes­skóla frá árinu 2021 er kom­inn upp í 7,8 millj­arða króna að núvirði með til­liti til verð­bólgu sam­kvæmt opnu bók­haldi bæj­ar­ins. Fyrirséð er að kostn­aður mun hækka þar sem upp­gjöri á öllum verk­þáttum er ekki lokið. Upp­haf­lega útboðið mið­aði við að kostn­aður vegna upp­bygg­ingar skól­ans yrði rétt um 3,6 millj­arðar og átti að ljúka árið 2023.

Miðað við upp­haf­legar áætl­anir kost­aði upp­bygg­ing skól­ans tæp­lega helm­ingi meira en lagt var upp með árið 2021.

Bygg­ing­ar­saga skól­ans er sam­felld hrak­falla­saga. Bærinn rifti samn­ingum við einn verk­taka með afdrifa­ríkum afleið­ingum og verk­tak­inn sem tók við upp­bygg­ingu skól­ans fór gjald­þrota í miðju verki á síð­asta ári. Hann hélt þó verk­efn­inu áfram og er að klára það eftir að hafa skipt um nafn og kenni­tölu. Þá er dóms­mál í burð­ar­liðnum þar sem ítalskt verk­taka­fyr­ir­tæki telur sig hlunn­farið eftir að Kópa­vogs­bær rifti samn­ingum við fyr­ir­tækið árið 2023. Skóla­upp­bygg­ingin er nú …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Islendingar hafa stundum átt nógu erfitt með að byggja nothæf hús á Íslandi, hvað þá sumir útlendingar sem eru ókunnir aðstæðum hér í veðurfari.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár