Grænlendingar stofna samhæfingarhóp vegna hernaðarógnar frá Bandaríkjunum

Lands­stjórn Græn­lands býr sig undir það versta vegna þess að Banda­ríkin úti­loka ekki hern­að­ar­að­gerðir til að yfir­taka landið.

Grænlendingar stofna samhæfingarhóp vegna hernaðarógnar frá Bandaríkjunum
Múte B. Egede Fjár­mála­ráð­herra Græn­lands og fyrr­ver­andi for­maður land­stjórn­ar­innar sagði Græn­lend­inga þurfa að búa sig undir það versta, þótt ekk­ert bendi til hern­að­ar­í­hlut­unar enn. Mynd: AFP

Græn­lenska land­stjórn­arin, Naal­akk­ersu­isut, hélt blaða­manna­fund fyrir skemmstu vegna hækk­unar við­bún­að­ar­stigs á Græn­landi sem and­svar við hót­unum Banda­ríkja­for­seta um að yfir­taka landið.

Á fund­inum sögðu Jens-Frederik Nielsen, for­maður lands­stjórn­ar­innar, og Múte B. Egede fjár­mála­ráð­herra og fyrr­ver­andi for­maður lands­stjórn­ar­innar, að framundan væru aðgerðir til að mæta ógn­inni frá Banda­ríkj­unum.

„Við verðum að vera við­búin enn meiri þrýst­ingi, og þótt ekk­ert bendi til hern­að­ar­í­hlut­unar verðum við að búa okkur undir allt, því þjóðin sem þrýstir á okkur hefur ekki skipt um skoðun,“ hefur græn­lenski mið­ill­inn Sermitsiaq eftir Múte B. Egede á fund­inum.

Hann sagði alla í sam­fé­lag­inu „verða fyrir til­finn­inga­legum og and­legum áhrifum. Þetta finnum við öll, frá börnum til aldr­aðra, þar sem við ræðum um hvernig ástandið er á Græn­landi.“

Á fund­inum kynntu Egede og Nielsen að stofn­aður verði sam­hæf­ing­ar­hópur við­bragðs­að­ila sem mun starfa sam­kvæmt ákvörð­unum lands­stjórn­ar­innar.

Í sam­hæf­ing­ar­hópnum eru full­trúar frá ýmsum ráðu­neytum, lög­regl­unni og sveit­ar­fé­lögum.

„Við verðum að vera við­búin og skapa öryggi í sam­fé­lag­inu. Þótt það hljómi ólík­lega viljum við vera við­búin öllu sem getur gerst,“ sagði Egede á fund­inum.

Ástæðan er að „hinn aðil­inn,“ sem telja má að sé Banda­ríkin, hafi ekki úti­lokað hern­að­ar­að­gerðir gegn Græn­landi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár