Trump segist ekki bundinn af friði

Banda­ríkja­for­seti seg­ist ekki bund­inn af friði þegar kemur að Græn­landi, þar sem hann hafi ekki fengið frið­ar­verð­laun Nóbels. „Ég hef gert meira fyrir NATO en nokkur annar frá stofnun þess og nú ætti NATO að gera eitt­hvað fyrir Banda­ríkin,“ skrif­aði Donald Trump í skila­boðum til Jonas Gahr Støre, for­sæt­is­ráð­herra Noregs.

Trump segist ekki bundinn af friði

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, seg­ist ekki finna sig knú­inn til að hugsa ein­göngu um frið, þar sem hann hafi ekki fengið frið­ar­verð­laun Nóbels. „heldur get ég nú hugsað um það sem er gott og rétt fyrir Banda­ríki Norður-Ameríku“. 

ÚtskýrtFor­sæt­is­ráð­herr­ann Støre seg­ist hafa margút­skýrt fyrir Trump að það séu ekki stjórn­völd hans sem veiti Nóbels­verð­launin.

Þetta skrif­aði hann í skila­boðum til Jonas Gahr Støre, for­sæt­is­ráð­herra Noregs. Støre stað­festir við norska fjöl­miðla að hann hafi fengið skila­boðin frá Trump á sunnu­dags­kvöld. Þau hafi verið svar við skila­boðum sem hann sendi Banda­ríkja­for­seta fyrr um dag­inn.

Støre hafði í skila­boðum sínum borið fram beiðni sína og Alex­ander Stubb, for­seta Finn­lands, um síma­fund með Trump vegna tolla sem hann hefur lagt á ríkin tvö, og fleiri, til að þrýsta á um að fá Grænland. 

Í sam­tali við NRK seg­ist Støre líka …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár