Aðsókn í guðfræði tekur kipp

Síð­ast­liðin tvö ár hefur borið á aukn­ingu í fjölda nýnema í guð­fræði­námi við Háskóla Íslands. Deild­ar­for­seti guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deildar segir fleiri koma beint úr fram­halds­skóla en áður og að til­finn­ing hennar sé að fólk stefni á að starfa innan kirkj­unnar.

Aðsókn í guðfræði tekur kipp
Aukinn áhugi á trú Arnfríði þykir ekki óraun­hæft að álykta að eitt­hvað sam­band sé á milli auk­innar aðsóknar í guð­fræði­nám og auk­ins áhuga á trú í sam­fé­lag­inu. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Síðustu tvö árin hefur aðsókn í guð­fræði­nám við Háskóla Íslands auk­ist. Í haust hófu 27 nem­endur nám við deild­ina og hafa þeir ekki verið fleiri frá árinu 2011 þegar þeir voru 29. Árið 2024 voru nýnem­arnir 18 tals­ins. Þetta er nokkur breyt­ing frá árunum 2020-2023 þegar fjöldi nýnema var á bil­inu 8-14.

„Það sem mér finnst aðeins meira áber­andi núna er að við erum að fá fleira fólk beint úr fram­halds­skóla. Það er mjög ánægju­legt að fá ferskt ungt fólk inn,“ segir Arn­fríður Guð­munds­dóttir, guð­fræði­pró­fessor og deild­ar­for­seti guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deildar. 

Hún segir hóp­inn sem sæki námið vera „mjög bland­aðan“ og það hafi verið þannig lengi. Fólk sækir í nám í guð­fræði af ýmsum ástæðum, sumir af ein­skærum fræði­legum áhuga en aðrir því þeir stefna á starf innan kirkj­unnar. „Við erum með fimm námslínur svo það eru ekki allir að koma í sama til­gangi. Ég hef ekki gert neina úttekt á …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
5
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár