Unglingastarfið tvöfaldast í Hvítasunnukirkjunni: „Þetta er ekki fólk sem er í krísu“

Aukning í kirkju­sókn ungs fólks hefur gert vart við sig í Hvíta­sunnu­kirkj­unni Fíla­delfíu líkt og innan þjóð­kirkj­unnar. For­stöðu­maður safn­að­ar­ins segir að það sem ein­kenni ung­mennin sé sjálf­sprottin trú án þess að þau standi frammi fyrir erf­ið­leikum í líf­inu. „Þau eign­uð­ust trú á Guð, fóru að biðja og stunda sitt trú­ar­líf í ein­rúmi. Svo finna þau hjá sér sterka þörf til að tengj­ast öðrum.“

<span>Unglingastarfið tvöfaldast í Hvítasunnukirkjunni:</span> „Þetta er ekki fólk sem er í krísu“
Selja Biblíur Þrátt fyrir að vera ekki með fræg­ustu bóka­búð lands­ins hafa fjöl­margir karl­menn um þrí­tugt verið að koma í Fíla­delfíu til að fjár­festa í Biblíum. Mynd: Golli

Nokkuð hefur verið fjallað um aukna aðsókn og áhuga ungs fólks, einkum karl­manna, í þjóð­kirkj­unni. Í sam­tali við Heim­ild­ina í des­em­ber sagði sókn­ar­prestur Nes­kirkju að þá þróun væru prestar um allt land að sjá. Þá taldi hann að enn fleiri væru að hneigj­ast til trúar en mættu endi­lega í messu. „Senni­lega er þetta topp­ur­inn af ísjak­anum sem við erum að fá.“

Svipaða þróun í kirkju­sókn ung­menna má merkja í kristnum söfn­uðum utan þjóð­kirkj­unnar. 

Helgi Guðnason, for­stöðu­maður Hvíta­sunnu­kirkj­unnar Fíla­delfíu, segir að söfn­uð­ur­inn hafi farið að taka eftir auk­inni aðsókn ung­menna fyrir um tveimur árum. Allt í einu hafi ungir karlar, sem er sá hópur sem allar kirkjur hafa átt hvað erf­ið­ast að ná til í áranna rás, farið að koma í mjög auknum mæli. „Þessir ungu karlar sem týnd­ust alltaf eru allt í einu farnir að mæta með Biblíuna, sem þeir eru búnir að lesa, og vilja fá svör,“ segir hann. …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Svo er fullt af fólki sem forðast aðra sem skera sig úr hinum hvað með þau?
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    En er afskiptaleysi þá áundanhaldi hvað varðar kjör og hagi annara um leið og trúin eflist hjá blessaða fólkinu?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár