Krefst þess að Trump hætti að hóta yfirtöku Grænlands

Mette Fred­rik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, mælist til þess að „Banda­ríkin hætti hót­unum gegn sögu­lega nánum banda­manni og gegn annarri þjóð og öðru fólki sem hefur mjög skýrt sagt að það sé ekki til sölu.“

Krefst þess að Trump hætti að hóta yfirtöku Grænlands
Mette Frederik­sen For­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur hefur ítrekað kröfu um að Banda­ríkja­for­seti hætti að hóta yfir­töku Græn­lands. Mynd: EPA

Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, hvatti Banda­ríkin í dag til að hætta að „ógna sögu­legum banda­manni sínum“ í kjöl­far yfir­lýs­inga Donalds Trumps for­seta um að hann „þyrfti algjör­lega“ á Græn­landi að halda.

„Ég verð að segja þetta mjög skýrt við Banda­ríkin: það er alger­lega fárán­legt að segja að Banda­ríkin eigi að taka yfir stjórn á Græn­landi,“ sagði danski leið­tog­inn í yfir­lýs­ingu, eftir að Trump ítrek­aði ummæli sín um að Banda­ríkin ættu að inn­lima danska sjálf­stjórn­ar­svæðið.

Í yfir­lýs­ingu til Ritzau segir for­sæt­is­ráð­herr­ann:

„Ég verð að segja þetta mjög skýrt við Banda­ríkin: Banda­ríkin hafa engan rétt til að inn­lima eitt af þremur löndum ríkja­sam­bands­ins.“

Mette Frederik­sen tekur skýrt fram í yfir­lýs­ing­unni að Grænland, sem hluti af kon­ungs­rík­inu Danmörku, sé hluti af NATO og falli því undir örygg­is­á­byrgð NATO-banda­lags­ins.

„Við höfum þegar varn­ar­samn­ing milli kon­ungs­rík­is­ins og Banda­ríkj­anna sem veitir Banda­ríkj­unum víð­tækan aðgang að Græn­landi. Og við, af hálfu kon­ungs­rík­is­ins, höfum fjár­fest veru­lega í örygg­is­málum á norð­ur­slóðum,“ segir for­sæt­is­ráð­herr­ann, að sögn Ritzau.

Frederik­sen lauk máli sínu á því að hún „hvetji ein­dregið til þess að Banda­ríkin hætti hót­unum gegn sögu­lega nánum banda­manni og gegn annarri þjóð og öðru fólki sem hefur mjög skýrt sagt að það sé ekki til sölu.“

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár