„Mun berjast fyrir frelsi okkar“

Græn­lenski for­sæt­is­ráð­herr­ann seg­ist „dapur“ yfir stig­mögnun í ásælni Banda­ríkja­for­seta í inn­limun Græn­lands í Banda­ríkin.

„Mun berjast fyrir frelsi okkar“
Jens-Frederik Nielsen For­sæt­is­ráð­herra Græn­lands hefur ítrekað þurft að banda frá sér ágengni Banda­ríkja­for­seta.

 „Ég mun ávallt berj­ast fyrir frelsi okkar og rétti til að ákveða sjálf og móta fram­tíð okkar,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, for­sæt­is­ráð­herra Græn­lands, í jóla­kveðju í skugga ásælni Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, sem ítrek­aði í gær áform sín um að inn­lima Grænland í Banda­ríkin.

„Við þurfum á því að halda vegna þjóðar­ör­yggis. Við verðum að fá það,“ sagði Trump og bætti við að nýskip­aður sendi­full­trúi gagn­vart Græn­landi, Jeff Landry, rík­is­stjóri Louisiana, „vildi leiða áhlaupið“.

Evr­ópu­sam­bandið lýsti strax stuðn­ingi við Danmörk og Græn­lend­inga. Og Jens-Frederik Nielsen gaf frá sér enn eina yfir­lýs­ing­una gegn ásælni Trumps.

„Forseti Banda­ríkj­anna lýsti aftur yfir á blaða­manna­fundi í nótt ósk sinni um að yfir­taka Grænland. Með slíkum orðum er landið okkar smættað niður í spurn­ingu um völd og örygg­is­mál. Þannig sjáum við okkur ekki og þannig getum við á Græn­landi ekki né eigum að láta tala um okkur. Við erum þjóð með langa sögu, sterka menn­ingu og lif­andi lýð­ræði. Við erum land sem ber ábyrgð á eigin land­svæði og eigin fram­tíð. Land­helgi okkar og sjálfs­á­kvörð­un­ar­réttur er tryggður í þjóða­rétti og ekki er hægt að hunsa hann,“ sagði Nielsen í Facebook-færslu í morgun.

„Aftur: Grænland er landið okkar. Ákvarð­anir okkar eru teknar hér,“ bætti hann við.

Nielsen sagði treg­ann bland­ast þakk­læti.

„Takk til ykkar hér heima fyrir skýran stuðn­ing og sam­stöðu sem hefur verið sýnd. Sú ró og virð­ing sem þið hafið mætt aðstæð­unum með sendir skýr skila­boð um þjóð sem stendur föst á gildum sínum og ábyrgð,“ sagði Nielsen.

„Ég vil einnig þakka rík­is­stjórn­ar­leið­togum og sam­starfs­að­ilum um allan heim sem hafa skýrt og afdrátt­ar­laust lýst yfir virð­ingu sinni fyrir Græn­landi, lýð­ræð­is­legum stofn­unum okkar og grund­vall­ar­reglum þjóða­réttar. Sá stuðn­ingur stað­festir að við hér heima stöndum ekki ein.“

Evr­ópu­sam­bandið lýsti í gær yfir „fullri sam­stöðu“ með Danmörku, sem er aðild­ar­ríki, eftir að Banda­ríkin útnefndu Landry sendi­full­trúa fyrir Grænland, sam­hliða yfir­lýs­ingu hans um að bæta Græn­landi í Banda­ríkin.

„Land­helgi og full­veldi eru grund­vall­ar­reglur þjóða­réttar,“ sögðu Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, og Antonio Costa, for­seti leið­toga­ráðs­ins, á X.

„Þessar reglur eru ekki aðeins nauð­syn­legar fyrir Evr­ópu­sam­bandið, heldur fyrir þjóðir um allan heim. Við stöndum í fullri sam­stöðu með Danmörku og græn­lensku þjóð­inni,“ sögðu þau.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra lýsti sömu­leiðis almennum stuðn­ingi við rétt Græn­lands og Dan­merkur til full­veldis. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Spurningin er þessi: Er einhver munur á Trump 2026 og Hitler 1939?
    0
  • HH
    Hjörtur Herbertsson skrifaði
    Þetta er meira skrípið þessi Trump, lítið betri en Pútín, hótar hervaldi til að sölsa undir sig land, sem hefur engan áhuga á honum. Þyrfti að spirða þessa tvo saman og setja á eyðieyju
    0
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Það þyrfti einhver að benda Trump á að til þess að bæta öryggi heimsins þyrfti Danmörk að yfirtaka Bandaríkin.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár