Þegar Chavez komst til valda – og síðan Maduro

Ástandið í Venes­ú­ela hefur verið slæmt síð­ustu ár og óstjórn Maduro for­seta kennt um. Hvort það muni skána nú þegar honum verið hrint úr sessi er óvíst en hér er fjallað um hvað varð til þess að hann, og þó öllu heldur for­veri hans, komst til valda.

Þegar Chavez komst til valda – og síðan Maduro
Hugo Chavez fagnar sigri í for­seta­kosn­ingum í Venes­ú­ela 1998. Til hægri er einn af laut­inöntum hans þá og síðar, Nicolás Maduro.

Alkunna er að Spán­verjar lögðu undir sig alla Mið- og Suður-Ameríku strax í kjöl­far landa­funda þeirra um 1500, nema hvað Portú­galir réðu Brasilíu og Bretar, Frakkar, Hol­lend­ingar og jafn­vel Danir réðu ýmsum eyjum Karí­ba­hafs.

Eitt hér­aða þeirra var Venes­ú­ela sem varð svo einna fyrst þeirra til að lýsa yfir sjálf­stæði frá Spán­verjum í upp­hafi 19. aldar og fullt sjálf­stæði var fengið um 1830. Hin nýfrjálsu ríki rómönsku Ameríku hugð­ust koma á frjáls­lyndum lýð­ræð­is­ríkjum að hætti nágranna síns í norðri, Banda­ríkj­anna, en af ýmsum ástæðum náði lýð­ræði ekki að skjóta þar djúpum rótum.

Venes­ú­ela var næstu hálfa aðra öld­ina leiksoppur valda­mik­illa her­for­ingja, ein­ræð­is­herra og auð­ugra land­eig­enda. Þeir rök­uðu að sér auð­æfum, ekki síst eftir að í ljós kom upp úr 1910 að gríð­ar­legar olíu­lindir voru í land­inu, og sátu yfir hlut alþýð­unnar sem mátti sætta sig við mikla fátækt og oft harð­neskju­leg mann­rétt­inda­brot.

Sádi-Venesúela

Árið 1958 varð breyt­ing á. Þá …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár