„Samfélagslega ótækt“ að Margrét Löf fái arf

„Ég tel að það sé eitt­hvað sem við sem sam­fé­lag getum alls ekki sam­þykkt,“ segir Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son rétt­ar­gæslu­maður hálf­bróður Mar­grétar Löf. En kröfu hans um að hún hefði fyr­ir­gert sér arfi var vísað frá þegar dómur í mál­inu féll í gær.

„Samfélagslega ótækt“ að Margrét Löf fái arf
Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son Segir ótækt að mann­eskja sem fyr­ir­kemur annarri mann­eskju erfi við­kom­andi. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég tel að það sé sam­fé­lags­lega ótækt og ekki rétt að mann­eskja sem fyr­ir­kemur annarri mann­eskju taki arf eftir við­kom­andi,“ segir Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son rétt­ar­gæslu­maður hálf­bróður Mar­grétar Höllu Hans­dóttur Löf. Hún var í gær dæmd í sextán ára fang­elsi fyrir að bana föður sínum og fyrir að beita móður sína ofbeldi.

Hálf­bróð­ir­inn krafð­ist þess fyrir dómi að hún hefði fyr­ir­gert erfða­rétti sínum með því að myrða föður sinn. Ekki var fall­ist á þá kröfu og vísað til þess að sam­kvæmt lögum heyri svipt­ing erfða­réttar til refsi­kenndra við­ur­laga við afbroti. Slík ákvörðun hafi því þurft að koma frá ákæru­vald­inu. 

Óvisst um framhaldið

„Ég tel að nið­ur­staðan varð­andi sak­fell­ingu og for­sendur fyrir henni og ákvörðun refs­ingar sé lög­fræði­lega hár­rétt og í sam­ræmi við dóma­fram­kvæmd,“ segir Vil­hjálmur um nið­ur­stöðu dóms­ins.

Það sé hins vegar …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    „Ákæruvaldið ákveður hins vegar með hvaða hætti það hagar ákæru í málinu og hvaða kröfur það hefur uppi í ákærunni fyrir hönd ákæruvaldsins.“ Er þetta ekki hálfgerð steypa ? Hitt er að það er þá sjálfgefið að myrði maður efnaðan ættungja sem arfþegi, getur það borgað sig !?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár