„Ég er að hóta þér. Þú munt ekki yfirgefa mig.“

Hann gekk svo langt að hóta að grafa upp afa sam­býl­is­konu sinnar og lýsti ítar­lega áformum um ofbeldi, en þarf ekki að afplána refs­ingu.

„Ég er að hóta þér. Þú munt ekki yfirgefa mig.“
Ofbeldi Ofbeldi maka getur magn­ast upp við skilnað, en mik­il­vægt er að finna leið­ina út. Myndin er svið­sett. Mynd: Sviðsett / Pexels

Kona sem reyndi að slíta sam­bandi við sam­býl­is­mann sinn varð fyrir alvar­legum og langvar­andi hót­unum manns­ins, sem nú hefur verið dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi, án þess að þurfa að afplána dóm­inn.

Dóms­málið sýnir hversu langt and­legt ofbeldi getur teygt sig og svo hversu tak­mörkuð refs­ing er við athæf­inu. 

Langvarandi hótanir

Það var skömmu fyrir jólin 2023 sem konan fór að fá alvar­legar hót­anir frá mann­inum, sem hún vildi slíta sam­bandi við.

Hann hót­aði í smá­skila­boðum bæði henni dauða og svo sjálfs­vígi.

„Ég er að hóta þér. Þú munt ekki yfir­gefa mig. Bara dauð eða dauður, ég,“ skrif­aði hann.

Sama dag end­ur­tók hann hót­anir sínar. „„Ég drep þig [...], ég drep þig [...],ég drep þig.“

Hann víkk­aði síðan út hót­an­irnar. „Ég er að hóta þér, A, fjöl­skyldu þinni og öllum. Þú munt ekki yfir­gefa mig svona, nei.“

Lýsingar ofbeldis

Nokkrum mán­uðum síðar, í maí í ár, fóru hót­an­irnar yfir á næsta stig. Hann sendi kon­unni, sem hafði slitið sam­vistum við hann, hljóð­skila­boð með ítar­legum lýs­ingum á fyr­ir­ætl­unum sínum. 

„Þú munt sjá, sjáðu, ef ég ekki ríf þig í tvennt, opna ég mag­ann á þér, tek  mag­ann  þinn  út.  Spýttu  framan  í  mig,  bíddu  bíddu  svo  þú  sjáir enda­lok þín, og sjáir hvernig ég ætla að gera það.“

Fimm dögum síðar héldu hót­an­irnar áfram. „Ég næ í fjöl­skyldu þína lif­andi eða dauða,“ sagði hann í hljóð­skila­boðum. „Þú færðir mig hingað aftur, ég ætla að drepa þig tík,“ bætti hann við.

Aðferðir hans til að reyna að kúga kon­una til fylgilags við sig sner­ust þannig ekki aðeins að hót­unum heldur til­raunum til að setja hana niður og smána með orðum. 

Hótaði að grafa upp afa hennar

Þegar ekki gekk hjá mann­inum að ná stjórn á kon­unni með fyrr­greindum hót­unum, bætti hann í þær og reyndi að smána fjöl­skyldu hennar. Hann fór að smána fjöl­skyldu hennar og gekk svo langt að hóta henni að sví­virða lík afa hennar, þegar konan lét ekki að stjórn.

„Ef þú ert alvöru, komdu út og segðu það við and­litið á mér tík, [...] Komdu út tík, komdu út, hel­vítis tík. Mamma þín er tík. Þú ert tík eins og hún,“ sagði hann og hét áfram­hald­andi hót­unum.

„Sjáðu, ég ætla að grafa upp afa þinn.“
Ofbeld­is­maður
Hótanir til fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu

„Ég ætla ekki að gef­ast upp. Nú er stríðið hafið. Nú ætla ég að segja þér aðeins, nú ætla ég  að  tala  um  móð­ur­ina  sem  fæddi  þig.  Ef  ég  lem  þig  ekki,  ef  ég  brýt  ekki haus­inn á þér. Ég brýt haus­inn þinn þegar ég sé part­ana úr afa þínum. [...] Af hverju kem­urðu ekki út, tík ? Hóra! Það var gaur sem reið systur þinni. Fjórir gaurar  sem  riðu mömmu  þinni.  [...]Sjáðu,  ég  ætla  að  grafa  upp  afa  þinn. Heyrðu. Þú munt hringja grát­andi eftir að ég geri það,  þú ert að neyða  mig núna. Ég lofa þér, áður en þetta klár­ast, ætla ég að stinga þig og fara í fang­elsi. [...] Ég ætla að stinga þig.“

Játaði og iðraðist

Eftir að yfir­völd gripu inn í sam­skipti hans við fyrr­ver­andi sam­býl­is­kon­una kaus mað­ur­inn að játa og iðr­ast. Hann hafði ekki verið dæmdur fyrir brot áður. 

„Ákærða til máls­bóta er litið til  þess að hann  ját­aði  brot sitt ský­laust  og iðr­að­ist hátt­semi sinnar,“ segir í dómnum við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, sem féll 8. des­em­ber. 

Konan hafði farið fram á bætur upp á 2,5 millj­ónir króna vegna áreit­is­ins og hót­an­anna. „Verður skýrt ráðið að hún upp­lifði mikla van­líðan og óör­yggi vegna hátt­semi hans,“ segir í dómnum. „Þykir fjár­hæð miska­bóta hæfi­lega  ákveðin, með hlið­sjón af atvikum, 400.000 krónur,“ segir svo.

Sem fyrr segir mun mað­ur­inn ekki þurfa að afplána 90 daga fang­els­is­dóm sem hann fékk, brjóti hann ekki af sér á ný.

Langvarandi áhrif andlegs ofbeldis

Sam­kvæmt sér­fræð­ing­um hef­ur and­lega of­beld­ið jafn­vel verri áhrif á líf og sál­ar­heill þo­lenda held­ur en sár sem gróa því áhrif þess eru svo lúmsk, langvar­andi og víð­tæk. Stundin, for­veri Heim­ild­ar­innar, fjall­aði ítar­lega um áhrif and­legs ofbeldis með við­töl við þolendur þess árið 2021. 

Tölfræði Kvenna­at­hvarfs­ins sýnir að 94% þeirra sem þangað leita hafa orðið fyrir and­legu ofbeldi. Samkvæmt tölum Evr­ópu­sam­bands­ins um kyn­bundið ofbeldi hafa 18% af konum, sem hafa verið í sam­bandi, upp­lifað lík­am­legt eða kyn­ferð­is­legt ofbeldi. Hlut­fallið hækkar í 32% ef and­legt ofbeldi er tekið með inn í mynd­ina. Þannig hefur þriðj­ungur kvenna í ESB átt maka sem beitir ofbeldi.

Hægt er að kynna sér mynstur og aðferðir í ofbeld­is­málum og leiðir til að losna, í ofbeld­is­gátt á vefnum 112.is. Þar er hægt að fá upp­lýs­ingar um mun­inn á slæmum sam­skiptum og ofbeldi og fá beina aðstoð.

„Ef þú ert alvöru, komdu út og segðu það við and­litið á mér tík, [...] Komdu út

tík, komdu út, hel
vítis tík. Mamma þín er tík. Þú ert tík eins og hún. Ég ætla
ekki að gef­ast upp. Nú er stríðið hafið. Nú ætla ég að segja þér aðeins, nú ætla
ég að tala um móð­ur­ina sem fæddi þig. Ef ég lem þig ekki, ef ég brýt ekki
haus­inn á þér. Ég brýt haus­inn þinn þega
r ég sé part­ana úr afa þínum. [...] Af
hverju kem­urðu ekki út, tík ? Hóra! Það var gaur sem reið systur þinni. Fjórir
gaurar sem riðu mömmu þinni. [...]Sjáðu, ég ætla að grafa upp afa þinn.
Heyrðu. Þú munt hringja grát­andi eftir að ég geri það, þú ert að n
eyða mig
núna. Ég lofa þér, áður en þetta klár­ast, ætla ég að stinga þig og fara í fang­elsi.
[...] Ég ætla að stinga þig.”

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hvað er það í okkar yndislega heimi þar sem þjóðarhreinsanir eru viðurkenndar í beinni útsendingu og hatur á allskonar minnihlutahópum gerir yfir 30% karla andlega sjúka ?? Það er kannski það !!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár