Mynd: Heiða Helgadóttir

Orð sem meiða og mynda sár sem seint gróa

Andlegt ofbeldi fylgir gjarnan lík­am­legu ofbeldi og kyn­ferð­is­of­beldi. Konur segja hér frá orðum sem voru látin falla á meðan þær voru beittar ofbeldi, orð sem hafa setið eftir í hugum þeirra og eitrað út frá sér. Orð sem fela í sér sárs­auka og minna stöðugt á ofbeldið. Samkvæmt sér­fræð­ingum hefur and­lega ofbeldið jafn­vel verri áhrif á líf og sál­ar­heill þolenda heldur en sár sem gróa því áhrif þess eru svo lúmsk, langvar­andi og víð­tæk. Engu að síður hafa þessi orð fengið lítið vægi við með­ferð mála í rétt­ar­vörslu­kerf­inu. Margar þess­ara kvenna eru að end­ur­segja orðin í fyrsta sinn. Eins og ein orð­aði það: „Megi þessi orð rotna ann­ars staðar en í mag­anum á mér.“

Orð sem eru látin falla á meðan ofbeldi er beitt geta setið lengi eftir í huga þeirra sem fyrir þeim verða. Orðin sem meiða hafa jafn­vel verri áhrif heldur en lík­am­lega ofbeldið, því á meðan sárin gróa situr lít­ils­virð­ingin eftir, til­raunin til að svipta þolendur mennsk­unni. Orð sem geta verið sem brenni­merkt í huga þolenda, end­u­r­ómað þar og kallað fyr­ir­vara­laust fram bæði end­ur­lit af ofbeld­inu og nei­kvæðar til­finn­ingar. Orð sem hafa áhrif á sjálfs­mynd þolenda og örygg­is­kennd. Þessu lýsa konur sem hafa verið í ofbeld­is­að­stæðum og segja hér frá því hvaða orð sitja eftir, hvers vegna og hvaða skaða þau hafa valdið. Orðin eru ekki aðeins meið­andi heldur afhjúpa þau hug­ar­á­stand ger­enda, hvort sem um er að ræða afneitun þeirra, til­raunir til að bregð­ast við rofi á milli þess sem þeir vilja vera og þeir sem þeir eru, og í sumum til­fellum ein­lægan ásetn­ing til að valda þolendum sínum sárs­auka. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár