Pútín berst við verðbólgu og hækkar skatta

Enginn hag­vöxtur og há verð­bólga hrjá Rússland.

Pútín berst við verðbólgu og hækkar skatta
Vladimir Pútín Hér á fjar­fundi í gær hjá For­seta­ráði um þróun borg­ara­legs sam­fé­lags og mann­rétt­inda, sem helgar sig bar­áttu fyrir rétt­indum og frelsi í Rúss­landi. Mynd: AFP

Rússland til­kynnti um mesta sam­drátt í árlegri verð­bólgu það sem af er ári, sam­kvæmt gögnum frá hag­stofu rík­is­ins í dag, þar sem háir vextir kæla niður stríðs­hag­kerfið.

Aukin hern­að­ar­út­gjöld höfðu valdið þenslu í rúss­neska hag­kerf­inu í tvö ár eftir að Rúss­lands­her réðst inn í Úkraínu.

En þau ýttu einnig undir verð­bólgu, sem nú hefur áhrif á hag­vöxt, þar sem fyr­ir­tæki kvarta undan háum lán­töku­kostn­aði sem þau segja að haldi aftur af hag­kerf­inu.

Samkvæmt tölum sem hag­stofan Rosstat birti lækk­aði árleg verð­bólga í nóv­em­ber í 6,6 pró­sent sam­an­borið við 7,7 pró­sent mán­uð­inn á undan.

Í síð­asta mán­uði sagði Rosstat að hag­vöxtur lands­ins hefði verið nálægt núlli á þriðja árs­fjórð­ungi, á meðan seðla­bank­inn bjóst við að halda vöxtum hærri lengur vegna þrá­látrar verð­bólgu.

Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir að árleg verð­bólga muni ekki ná fjög­urra pró­senta mark­miði sínu fyrr en árið 2027.

Til að fylla upp í göt í þving­uðum rík­is­fjár­málum Rúss­lands eru stjórn­völd í Kreml að leita leiða til að seil­ast í vasa borg­ara og fyr­ir­tækja til að brúa fjár­laga­gat sem nemur um 50 millj­örðum dala, sem jafn­gildir um 6,4 billjónum króna, eða um 6.400 millj­örðum króna, það sem af er ári.

Vladimír Pútín for­seti sam­þykkti nýlega að hækka virð­is­auka­skatt (VSK) í 22 pró­sent úr 20 pró­sentum á næsta ári, en sami skattur er 24% á Íslandi.

Lægra olíu­verð var einnig áskorun fyrir fjár­lögin, en jarð­efna­elds­neyti skilar tæp­lega fimmt­ungi af tekjum rík­is­ins.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár