Baggalútar fá 429 þúsund hver

Fyr­ir­tækið sem heldur utan um hljóm­sveit­ina Baggalút átti meira en hund­rað millj­óna króna eignir í lok síð­asta árs. Stærstur hluti þeirra eigna eru pen­ingar á banka­bók.

Baggalútar fá 429 þúsund hver
Jólatón­leika­röð Baggalútur hefur um ára­bil haldið jólatón­leika­röð sem hefur verið vel sótt. Ekki kemur fram í árs­reikn­ingnum hverjar tekj­urnar eru nákvæm­lega af þessu tón­leika­haldi en rekstr­ar­tekjur í heild námu 120 millj­ónir króna árið 2024.

Fyr­ir­tækið í kringum lista­hóp­inn Baggalút hagn­að­ist um fimm millj­ónir króna á síð­asta ári. Til stendur að greiða hverjum og einum eig­anda sem nemur 429 þús­und krónum í arð vegna árang­urs­ins.

Rekstr­ar­tekjur félags­ins voru rúmar 120 millj­ónir króna árið 2024 en kostn­aður við tón­leika­hald nam tæpum 108 millj­ónum króna. Leiða má að því líkum að stærstur hluti tekna félags­ins komi af miða­sölu á jólatón­leika Baggalúts, sem hafa verið haldnir árlega um ára­bil við miklar vin­sældir. Ekki er gerð grein fyrir hvernig kostn­aður við tón­leika­hald skipt­ist, né hvernig rekstr­ar­tekjur skipt­ast.

Það eru þeir Bragi Valdimar Skúlason, Garðar Þ. Guð­geirs­son, Guð­mundur Pálsson, Haraldur Hall­gríms­son, Jóhann B. Fjalldal, Karl Sig­urðs­son og Guð­mundur Kristinn Jónsson sem eiga félagið til jafns. Samkvæmt sam­þykktum Baggalúts felst aðal­starf­semi félags­ins í rekstri heima­síðu, tón­leika­halds og bóka- og tón­list­ar­út­gáfu.

Samkvæmt árs­reikn­ingi á Baggalútur geisla­diska, bækur og borð­spil upp á þrjár millj­ónir króna, verð­bréf upp á tíu og …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár