Evrópuleiðtogar standa með Zelensky gegn Trump

Línur skerp­ast milli Banda­ríkj­anna og Evrópu þar sem Evr­ópu­leið­togar standa með Úkra­ínu­for­seta. Vopnahlé verði að vera „rétt­látt og var­an­legt,“ segir Keir Starmer.

Evrópuleiðtogar standa með Zelensky gegn Trump
Evr­ópu­leið­togar hitt­ast Volody­myr Zelensky, for­seti Úkraínu, Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, og Friedrich Merz, kansl­ari Þýska­lands, spjalla saman á tröppum Downingstrætis 10 eftir fund í mið­borg London í dag. Mynd: AFP

Evr­ópskir banda­menn Úkraínu sýndu Volody­myr Zelensky for­seta stuðn­ing sinn í dag þegar þeir lýstu yfir efa­semdum um hluta af til­lögu Banda­ríkj­anna um að binda enda á inn­rás Rússa, sem staðið hefur í tæp fjögur ár.

Sama dag hélt Trump enn eina skammar­ræð­una yfir Evrópu og sagði álf­una „stefna í óefni“, meðal ann­ars vegna sektar sem Evr­ópu­sam­bandið lagði á sam­fé­lags­miðil Elons Musk.

Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, tók á móti Zelensky, Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta og Friedrich Merz, kansl­ara Þýska­lands, í bústað sínum í Downingstræti í London.

Við­ræð­urnar fóru fram eftir að Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, sak­aði Zelensky um að hafa ekki lesið til­lögu stjórnar sinnar um sam­komu­lag til að binda enda á tæp­lega fjög­urra ára stríð sem hófst með inn­rás Rússa í nágranna­land sitt.

Það gerð­ist í kjöl­far margra daga við­ræðna milli úkra­ínskra og banda­rískra emb­ætt­is­manna í Miami sem lauk á laug­ar­dag án sýni­legs árang­urs, en þar sem Zelensky skuld­batt sig til frek­ari samn­inga­við­ræðna.

Neitar að láta land af hendi

Eftir við­ræð­urnar í London sagði Zelensky að land­svæði Úkraínu væri eitt helsta deilu­málið í samn­inga­við­ræð­unum.

„Rússar krefj­ast þess að við gefum eftir land­svæði, en við viljum ekki láta neitt af hendi,“ sagði Zelensky á blaða­manna­fundi.

„Það eru erfið vanda­mál varð­andi land­svæðin og hingað til hefur engin mála­miðlun náðst,“ og bætti við að stjórn­völd í Kyiv hefði hvorki laga­legan né sið­ferði­legan rétt til að gefa eftir land sitt.

Zelensky flaug til Brussel síðar í dag til funda með yfir­mönnum NATO og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, en eftir þá sagð­ist hann myndu fljúga til Ítalíu.

Engar öryggisábyrgðir

Einnig var ofar­lega á baugi í við­ræð­unum spurn­ingin um örygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu.

„Lyk­il­at­riðið er að vita hvað sam­starfs­að­ilar okkar verða til­búnir að gera ef til nýrrar árásar Rússa kemur. Í augna­blik­inu höfum við ekki fengið nein svör við þess­ari spurn­ingu,“ sagði Zelensky.

Macron Frakk­lands­for­seti skrif­aði á X að „við erum að und­ir­búa öfl­ugar örygg­is­á­byrgðir og aðgerðir fyrir end­ur­upp­bygg­ingu Úkraínu“.

Macron sagði að „meg­in­málið“ væri að finna „sam­ræmi“ milli afstöðu Evrópu og Úkraínu og afstöðu Banda­ríkj­anna.

Fyrir við­ræð­urnar í London sagði Merz, leið­togi Þýska­lands, að hann væri „efins um sum smá­at­riðin sem við sjáum í skjöl­unum frá banda­rískum aðilum, en við verðum að ræða það“.

Og Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði að hann myndi ekki þrýsta á Zelensky að sam­þykkja sam­komu­lagið sem stjórn Trumps stendur fyrir – en upp­haf­lega útgáfa þess var gagn­rýnd af banda­mönnum Úkraínu fyrir að vera of hag­stæð Rússum.

„Mik­il­væg­ast er að tryggja að ef til vopna­hlés kemur, og ég vona það, þá verði það að vera rétt­látt og var­an­legt,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

Erfið umræða um frystar eignir

Zelensky sagði á leið sinni inn á fund­inn að „það eru sumir hlutir sem við getum ekki ráðið við án Banda­ríkja­manna, hlutir sem við getum ekki ráðið við án Evrópu, og þess vegna þurfum við að taka nokkrar mik­il­vægar ákvarð­anir“.

Hið erf­iða mál um hvernig Evrópa getur hugs­an­lega best nýtt frystar rúss­neskar eignir til að hjálpa Úkraínu var einnig rætt.

Áætlun Evr­ópu­sam­bands­ins um að nota frystar rúss­neskar eignir til að fjár­magna bar­áttu Úkraínu gegn Rúss­landi myndi hafa „víð­tækar afleið­ingar“ fyrir ESB, var­aði sendi­herra Moskvu í Þýska­landi við í síð­ustu viku. Sömu­leiðis hafa Belgar, sem hýsa megnið af eign­unum, verið and­snúnir því að eign­irnar verði yfir­teknar.

„Vonsvikinn“ með Zelensky

Á laug­ar­dag sagði Zelensky að hann hefði tekið þátt í sím­tali með samn­inga­mönnum sínum í Miami-við­ræð­unum og átt „mjög inni­halds­ríkt og upp­byggi­legt“ sam­tal við banda­rísku sendi­menn­ina Steve Witkoff, fjár­festi og vini Trumps, og Jared Kushner, tengda­syni Trumps.

En Trump gagn­rýndi úkra­ínskan starfs­bróður sinn í gær og sagði við frétta­menn: „Ég verð að segja að ég er svo­lítið von­svik­inn yfir því að Zelensky for­seti hafi ekki enn lesið til­lög­una, það var staðan fyrir nokkrum klukku­stundum.“

Witkoff og Kushner höfðu fundað með Vladimir Pútín Rúss­lands­for­seta í Kreml í síð­ustu viku, en stjórn­völd í Moskvu höfn­uðu hluta af til­lögu Banda­ríkj­anna.

Fyrir við­ræð­urnar á mánu­dag gagn­rýndi Macron það sem hann kall­aði „stig­mögn­un­ar­stefnu“ Rúss­lands.

„Við verðum að halda áfram að beita Rússland þrýst­ingi til að neyða það til að velja frið,“ skrif­aði hann á X.

Trump sveiflast

Upp­haf­leg áætlun Washington um að binda enda á átökin fól í sér að Úkraína gæfi eftir land­svæði sem Rússar hafa ekki náð á sitt vald í skiptum fyrir örygg­is­lof­orð sem stand­ast ekki vænt­ingar Úkraínu um aðild að NATO.

Þær örygg­is­á­byrgðir sem Úkraína gæti fengið til að verj­ast hvers kyns fram­tíð­ar­inn­rás Rússa hafa hingað til verið sveip­aðar óvissu, fyrir utan upp­haf­lega til­lögu um að orr­ustu­þotur til varnar Úkraínu gætu verið stað­settar í Póllandi.

Trump hefur verið óstöð­ugur í afstöðu sinni til Úkraínu síðan hann tók aftur við emb­ætti í jan­úar, og ávítti Zelensky í upp­hafi fyrir að vera ekki þakk­látur fyrir stuðn­ing Banda­ríkj­anna.

En hann var einnig svekktur yfir því að til­raunir hans til að sann­færa Pútín um að binda enda á stríðið hefðu ekki borið árangur og hann beitti nýlega rúss­nesk olíu­fyr­ir­tæki refsi­að­gerðum, en neit­aði þó að afhenda Úkraínu lang­drægar Tomahawk-stýriflaugar sem gætu hoggið í fram­leiðslu og aðfanga­keðju Rússa, í þeirri von að Pútín myndi sam­þykkja frið­ar­um­leit­anir.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Nú reynir á, Evrópa stendur mikið til ein í dag hvort sem hún er tilbúin eða ekki.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár