Heimur samfélagsmiðlasvindla: „Það er ekki á minni ábyrgð að þau gerðu mistök“

Heim­ilda­þættir DR afhjúpa hvernig áhrifa­valdar selja dýr nám­skeið og drauma­líf á sam­fé­lags­miðlum. Þætt­irnir sýna hvernig ungt fólk verður skot­mark og hvernig gróð­inn byggir á stöðugri inn­komu nýrra með­lima.

Heimur samfélagsmiðlasvindla: „Það er ekki á minni ábyrgð að þau gerðu mistök“
„Auðvelt“ Weil hittir Krause í villu í Króatíu þar sem hann er með hópi af vinum og vinnu­fé­lögum. Þar tekur hann TikTok mynd­bönd með glæsi­legt útsýni sól­ríkrar villu í bak­grunn. „Þetta er auð­velt, en þetta er erf­ið­is­vinna,“ segir Krause. Mynd: DR

„Hvernig myndi lífið þitt líta út ef árið 2024 væri árið þar sem þú öðl­að­ist vel­gengni?“ eru upp­hafs­orð dönsku heim­ilda­þátt­anna Nemme penge sem má snara yfir á íslensku sem Auð­fengið fé. Heim­ilda­þætt­irnir eru fram­leiddir af danska rík­is­sjón­varp­inu, DR, og komu út fyrr á árinu. 

Í þætt­inum skyggn­ist fjöl­miðla­mað­ur­inn Jacob Weil inn í heim sam­fé­lags­miðla­svindla en und­an­farið hefur fjöldi not­enda á miðlum á borð við TikTok og Instagram birt stutt mynd­skeið af sér í sól­baði í dýrum lúx­usvillum, með gullin Rolex úr og í dýrum sport­bílum og selt sem raun­hæf mark­mið fyrir aðra not­endur. Fólk þarf aðeins að láta rakna af hendi tugi til hund­ruð þús­unda króna til að geta svo setið við sund­laug­ar­bakk­ann á meðan pen­ingur hrúg­ast inn á banka­bók­ina, sem er þó yfir­leitt langt frá því að vera sann­leik­ur­inn.

Svindlin byggja öll á því að selja ímynd um …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Allir reyna að ná í eins mikinnpening og þeirmögulega geta með öllum þeim ráðum sem þeir geta upphugsaðfyrirsig en all þetta kemst aðlögun upp því upp komastsvikumsíðir
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár