Innan við helmingur myndi kjósa stjórnarflokkana

Stuðn­ingur við stjórn­ar­flokk­ana þrjá á Alþingi mælist nú undir 50 pró­sentum. Staða Sam­fylk­ingar hefur styrkst á kjör­tíma­bil­inu, stuðn­ingur við Viðreisn dregst saman en Flokkur fólks­ins er í fall­hættu.

Innan við helmingur myndi kjósa stjórnarflokkana
Stjórn­ar­skipti Þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins var mynduð áttu sér stað hrein stjórn­ar­skipti. Enginn flokkur hélt áfram í meiri­hluta og einn stjórn­ar­flokk­anna, Vinstri græn, féllu af þingi. Mynd: Golli

Á meðan Sam­fylk­ingin hefur bætt við sig veru­lega hafa hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir, Viðreisn og Flokkur fólks­ins, tapað. Samkvæmt könnun Maskínu, sem birt var á Sýn í gær­kvöldi, njóta þessir flokkar ekki lengur fylgi meiri­hluta Íslend­inga. 

Sam­fylk­ingin mælist í 29,1 pró­sent, Viðreisn í 13,5 og Flokkur fólks­ins mælist ansi nálægt jöfn­un­ar­manna­þrösk­uld­inum með 5,6 pró­sent. Sam­an­lagt mæl­ast flokk­arnir með 48,2 pró­senta fylgi. Þetta er þó nægur stuðn­ingur til að tryggja flokknum meiri­hluta þing­sæta, þar sem útlit er fyrir að nokkur fjöldi atkvæða myndi falla dauð niður.

Stjórn­ar­flokk­arnir fengu rétt rúm­lega helm­ing atkvæða í síð­ustu kosn­ingum en síðan þá hefur Sam­fylk­ingin risið hátt og bætt við sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna. Nú dugir stærð Sam­fylk­ing­ar­innar ekki til, þar sem hinir stjórn­ar­flokk­arnir tveir hafa tapað meiri stuðn­ingi en flokkur for­sæt­is­ráð­herra hefur bætt við sig.

Stjórnarandstaðan í veikri stöðu

Stjórn­ar­anda­staðan er þannig ekki með meiri­hluta á bak við sig í könn­un­inni. Mið­flokkur er í fyrsta sinn …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár