„Latabæjar-perur“ helmingi dýrari en venjulegar perur

Kílóverð pera sem seldar eru sem „íþrótt­anammi“ í Bónus er tvö­falt hærra en kíló­verð þeirra pera sem seldar í lausu. Verk­efn­is­stjóri hjá Bónus segir það að íþrótt­anam­mið sé þvegið og í hæsta gæða­flokki sem skýri verð­mun.

„Latabæjar-perur“ helmingi dýrari en venjulegar perur

Perur sem seldar eru undir merkjum Lata­bæjar sem „íþrótt­anammi“ í Bónus eru meira en tvö­falt dýr­ari en perur sem fást í ávaxta­deild sömu búðar. Kílóverð þeirra er tæpar 900 krónur en í almennri sölu er það 428 krónur. 

Klem­ent­ínur eru 70 pró­sent dýr­ari undir merkjum Lata­bæjar en á öðrum stað í búð­inni en eplin 36 pró­sent.

Sumt íþrótt­anam­mið felur í sér blöndu af ávöxtum og græn­meti. Til dæmis er kíló­verðið af grænum vín­berjum og gul­rótum sem eru seld saman í pakka 2300 krónur. Þetta er hærra en kíló­verð bæði grænna vín­berja og gul­róta í Bónus sem kosta ann­ars vegar 1448 krónur og hins vegar 996 krónur kílóið.

Þó er vert að merkja að ekki er hægt að stað­festa að um nákvæm­lega sömu vör­una sé að ræða í öllum til­fellum.

Ekki hægt að bera saman peru og peru

Pétur Sig­urðs­son, verk­efna­stjóri verk­efn­is­ins hjá Bónus, segir að …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Hér kemur það skírt framm sem maður hefur lengi haldið það er verið að flitja inn vörur( ávexti) sem rétt ná því að vera til manneldis.Enda hvar sem maður fer eru ávextirnir miklu miklu fallegri og betri en hér þetta er eithvað fyrir verðlags eftirlitið.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    „Við fórum í mikla vinnu að hanna umbúðir sem eru mjög vandaðar og sýna vöruna vel. ..."
    Það kostar auðvitað líka sitt sem neytandinn borgar. Því miður eykur það enn á plastumbúðaflóðinu.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár