Himinn og haf á milli starfslokasamninga hjá Reykjavíkurborg

Fimm­faldur munur er á upp­hæðum starfs­loka­samn­inga milli tveggja sviða hjá Reykja­vík­ur­borg. Borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins telur notkun á þessu úrræði óeðli­lega. Einn starfs­maður fékk 22 mán­uði greidda.

Himinn og haf á milli starfslokasamninga hjá Reykjavíkurborg
Ráðhús Reykja­víkur Mikill munur er á starfs­loka­samn­ingum á milli sviða Reykja­vík­ur­borgar. Mynd: Bára Huld Beck

Fimm­faldur munur er á upp­hæðum á starfs­loka­samn­ingum á Skóla-og frí­stunda­sviðs Reykja­vík­ur­borgar og Vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar að því er fram kemur í svörum meiri­hluta borg­ar­stjórnar við fyr­ir­spurn borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Gerð hafa verið sam­komu­lag um starfs­lok við 13 stjórn­endur í leik­skólum og grunn­skólum frá 1. jan­úar 2015 til 15. maí 2025 og nemur upp­hæðin 367 millj­ónum króna á þessu tíma­bili. Þegar litið er til vel­ferð­ar­sviðs hafa verið gerðir átta starsloka­samn­ingar á síð­ustu tíu árum og kostn­aður sem fellur á útsvars­greið­endur eru 75 millj­ónir á sama tíma­bili. 

Lengsti ein­staki starfs­loka­samn­ing­ur­inn hjá skóla­stjórn­endum er 22 mán­uðir og sam­an­talin laun þessa ein­stak­lings 45 millj­ónir á tæpum tveimur árum. 

Á vel­ferð­ar­sviði er lengsti starfs­loka­samn­ing­ur­inn 12 mán­uðir, og voru tveir slíkir gerðir á einum ára­tug. Á sama tíma eru aðeins tveir starfs­loka­samn­ingar af þrettán undir 12 mán­uðum hjá Skóla og frí­stunda­sviði og eru þeir ann­ars­vegar 6 mán­uðir og svo fimm.

Helgi Áss Grét­ars­sonBorg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík.
Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    Af hverju fá stjórnendur starfslokasamninga en ekki almennir starfsmenn. Þetta er fullkomnlega óréttlátt. Auk þess sem upphæðirnar eru súrrealískar.
    2
    • Gunnar Björgvinsson skrifaði
      Sá eða sú sem er ábyrg fyrir þessu má fara sinn veg, en ég vill ekki hafa viðkomandi í vinnu hjá mér.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár