„Fíknihryðjuverkamaður“ sem lifði af loftárás látinn laus

Banda­ríkja­for­seti hefur látið drepa minnst 67 manns án dóms og laga. Einn þeirra sem lifðu af var lát­inn laus án ákæru.

„Fíknihryðjuverkamaður“ sem lifði af loftárás látinn laus
Donald Trump Hefur sagst ætla að drepa svo­kall­aða „fíkni­hryðju­verka­menn“, eða narko-ter­r­orista, en sér­fræð­ingar segja aug­ljóst að drápin séu ólög­legar aftökur. Mynd: AFP

Kól­umbíu­mað­ur­inn sem lifði af árás Banda­ríkja­hers á mein­tan eit­ur­lyfjakaf­bát í Karí­ba­hafi var lát­inn laus án ákæru eftir að hafa fengið með­ferð við meiðslum sínum, að því er yfir­völd sögðu frétta­stof­unni AFP í gær.

Þann 18. októ­ber var mað­ur­inn, sem er 34 ára gam­all, fluttur aftur til Kólumbíu í lífs­hættu­legu ástandi eftir að kaf­bát­ur­inn sem hann ferð­að­ist með var sprengdur í loft­árás.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hélt því fram, án þess að leggja fram sönn­un­ar­gögn, að farið hefði verið hlaðið fentanýli og öðrum fíkni­efnum, en vitað er að fentanýl fer sjaldn­ast þessa leið til Banda­ríkj­anna.

Tveir um borð lét­ust og tveir aðrir – Kól­umbíu­mað­ur­inn og ekvadorskur rík­is­borg­ari – voru hand­teknir og afhentir heima­löndum sínum.

Kól­umbíu­mað­ur­inn sem lifði af var lagður inn á sjúkra­hús í Bogota og þjáð­ist af áverkum á höfði og hugs­an­legum heila­skemmdum.

Armando Bene­detti inn­an­rík­is­ráð­herra hafði lýst því yfir að þegar hann næði bata yrði hann „sóttur til saka“ af dóms­kerf­inu sem „glæpa­maður“.

Heim­ild­ar­maður frá sak­sókn­ara­emb­ætt­inu sagði AFP hins vegar í gær að hann „hefði aldrei verið í haldi“ eftir að hafa verið útskrif­aður af sjúkra­húsi þann 22. októ­ber.

Heim­ild­ar­mað­ur­inn úr dóms­kerf­inu sagði að yfir­völd væru enn að rann­saka hvort mað­ur­inn hefði tengsl við fíkni­efna­hring.

Ekvador­inn sem lifði af var einnig lát­inn laus án ákæru í heima­landi sínu.

Svo­kall­aðir eit­ur­lyfjakaf­bátar – í raun og veru för sem eru aðeins að hluta til á kafi í vatn­inu – hafa í mörg ár verið not­aðir til að flytja kókaín frá Suður-Ameríku, einkum Kólumbíu, til Mið-Ameríku eða Mexíkó, venju­lega um Kyrra­hafið.

Stjórn­völd í Washington hafa beitt Gustavo Petro, vinstri­s­inn­aðan for­seta Kólumbíu, refsi­að­gerðum. Hann er harður gagn­rýn­andi stríðs Trumps gegn eit­ur­lyfja­smygl­urum í Rómönsku Ameríku, en er sak­aður af Trump-stjórn­inni um að leyfa eit­ur­lyfja­hringjum að dafna.

Petro hafnar ásök­unum Banda­ríkj­anna.

Að minnsta kosti 67 manns hafa fallið í árásum Banda­ríkja­hers á meinta eit­ur­lyfja­smygl­ara í Karí­ba­hafi og Kyrra­hafi frá því í byrjun sept­em­ber.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stríð Trumps

„Fólk er hrætt”
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem verið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” segir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ingur við Williams College í Banda­ríkj­unum og gesta­pró­fessor við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem nýverið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, annan um Íran og eld­fimt ástand vegna inn­rásar þar, hinn um aðþrengt akademískt frelsi í Banda­ríkj­unum.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár