Bandaríkin semja um að fá olíu Venesúela

„Stærsti olíu­samningur sögunnar“ færir Banda­ríkjunum aðgang að stærstu olíu­lindum heims eftir innrás og handtöku á forseta landsins.

Donald Trump
Donald Trump Til­kynnti eftir inn­rás í Venes­ú­ela í jan­úar að Banda­ríkin ætl­uðu að taka olíu lands­ins. Mynd: AFP

Donald Trump Bandaríkja­forseti segir að ríkis­stjórn hans hafi náð umfangs­miklu olíu­samkomulagi við Venesúela sem færði Banda­ríkjunum meirihluta­yfirráð yfir stað­festum olíu­birgðum sem telja 65 milljarða tunna.

Samkomu­lagið — sem Trump lýsti sem „stærsta olíu­samningi sögunnar“ — mun leiða til nærri 100 milljarða dala einka­fjár­festingar í Venesúela, að sögn bandarískra og venesúelskra embættis­manna.

Venesúela á mestu staðfestu olíu­birgðir heims. Stjórn­völd þar hafa verið undir miklum þrýstingi og nánu eftirliti ríkis­stjórnar Trumps frá því að Banda­ríkin steyptu Nicolás Maduro, sem lengi hafði farið með völd í landinu, af stóli og handtóku hann í janúar.

Stjórn­völd í Washington heimiluðu vara­forseta hans, Delcy Rodríguez, að sitja áfram og gegna embætti leiðtoga til bráða­birgða, svo lengi sem hún fylgdi stefnu Banda­ríkjanna.

Trump hefur ekkert farið leynt með vilja sinn til að tryggja Banda­ríkjunum aðgang að olíu Venesúela. Í færslu þar sem hann tilkynnti um samkomu­lagið á samfélags­miðlinum Truth Social sagði hann …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár