Bandaríkin semja um að fá olíu Venesúela

„Stærsti olíu­samn­ingur sög­unnar“ færir Banda­ríkj­unum aðgang að stærstu olíu­lindum heims eftir inn­rás og hand­töku á for­seta lands­ins.

Donald Trump
Donald Trump Til­kynnti eftir inn­rás í Venes­ú­ela í jan­úar að Banda­ríkin ætl­uðu að taka olíu lands­ins. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti segir að rík­is­stjórn hans hafi náð umfangs­miklu olíu­sam­komu­lagi við Venes­ú­ela sem færði Banda­ríkj­unum meiri­hluta­yf­ir­ráð yfir stað­festum olíu­birgðum sem telja 65 millj­arða tunna.

Sam­komu­lagið — sem Trump lýsti sem „stærsta olíu­samn­ingi sög­unnar“ — mun leiða til nærri 100 millj­arða dala einka­fjár­fest­ingar í Venes­ú­ela, að sögn banda­rískra og venes­ú­el­skra emb­ætt­is­manna.

Venes­ú­ela á mestu stað­festu olíu­birgðir heims. Stjórn­völd þar hafa verið undir miklum þrýst­ingi og nánu eft­ir­liti rík­is­stjórnar Trumps frá því að Banda­ríkin steyptu Nicolás Maduro, sem lengi hafði farið með völd í land­inu, af stóli og hand­tóku hann í jan­úar.

Stjórn­völd í Washington heim­il­uðu vara­for­seta hans, Delcy Rodríguez, að sitja áfram og gegna emb­ætti leið­toga til bráða­birgða, svo lengi sem hún fylgdi stefnu Banda­ríkj­anna.

Trump hefur ekk­ert farið leynt með vilja sinn til að tryggja Banda­ríkj­unum aðgang að olíu Venes­ú­ela. Í færslu þar sem hann til­kynnti um sam­komu­lagið á sam­fé­lags­miðl­inum Truth Social sagði hann …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár