38 sagt upp hjá Icelandair: „Svona ákvarðanir eru alltaf mjög erfiðar“

Ráðist hefur verið í end­ur­skipu­lagn­ingu á skrif­stofu flug­fé­lags­ins Icelandair. Rekst­ur­inn hefur verið þungur und­an­farin miss­eri.

38 sagt upp hjá Icelandair: „Svona ákvarðanir eru alltaf mjög erfiðar“
Bogi Nils Nilsson, for­stjóri Icelandair.

„Svona ákvarð­anir eru alltaf mjög erf­iðar. Þær hafa áhrif á starfs­fólk sem kveður og þau sem eftir verða og sjá á eftir góðum vinnu­fé­lögum,“ segir Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair í til­kynn­ingu sem var send á fjöl­miðla. Icelandair sagði upp 38 starfs­mönnum frá ýmsum deildum í dag. Flest starfs­fólkið vann hjá skrif­stofu félags­ins í Hafn­ar­firði. 

Bogi segir að þetta sé liður í hag­ræð­ing­ar­að­gerðum félags­ins. 

„Und­an­farin miss­eri höfum við verið að velta við öllum steinum til þess að snúa rekstri félags­ins við. Það er nauð­syn­legt til þess að Icelandair geti tek­ist á við sveiflur í síbreyti­legu umhverfi flug­rekstrar, til að tryggja sam­keppn­is­hæfni og bæta afkomu félags­ins til fram­tíðar. Einn liður í þess­ari veg­ferð er ein­földun skipu­lags og fækkun verk­efna sem leiðir því miður til breyt­inga í starfs­manna­hópnum sem við til­kynntum starfs­fólki okkar í dag. Ég vil þakka öllu því góða fólki sem nú lætur af störfum fyrir þeirra fram­lag til Icelandair og óska þeim alls hins besta.“

Í til­kynn­ingu segir að und­an­farin miss­eri hafi félagið gripið til fjöl­margra aðgerða og má þar nefna aðlögun leiða­kerf­is­ins að mark­aðs­að­stæðum, fækkun flug­véla í rekstri um tvær og að hætta rekstri breið­þotna á næsta ári, auk ýmissa umbóta­verk­efna þvert á fyr­ir­tækið sem hafa skilað sér í auk­inni skil­virkni og sjálf­virkni­væð­ingu, að því er segir í til­kynn­ingu Icelandair.

Þrátt fyrir að dregið hafi úr sam­keppni við Icelandair eftir að Play varð gjald­þrota fyrr í haust hefur til­trú fjár­festa á flug­fé­lag­inu ekki auk­ist. Frá ára­mótum hefur gengi bréfa í Icelandair fallir um 44,25 pró­sent og stendur í sögu­legri lægð.

Um miðjan októ­ber sendi Icelandair frá sér afkomu­við­vörun þar sem kom fram að rekstr­ar­hagn­aður fyrstu níu mán­aða árs­ins væri 74 millj­ónir doll­ara, sam­an­borið við 83,5 millj­ónir á sama tíma í fyrra. Gengi bréfa í félag­inu féll tölu­vert í kjöl­far við­vör­un­innar eftir að hafa tekið stökk upp­á­við í kjöl­far falls Play. 

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PJ
    Pétur Jósafatsson skrifaði
    Stjórnendur fyrirtækisins ættu kannski að líta í eigin barm. Virði fyrirtækisins hefur aldrei verið lægra, nokkuð viss um að sökin liggur ekki hjá þessum 38 sem var sagt upp núna.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár